Mercedes kynnir EQE rafdrifinn fólksbíl
Rafmagnsútgáfan af E-Class kemur í sölu á næsta ári.
Mercedes sendi frá sér þessa kynningarmynd af EQE. Hönnun bílsins er áberandi með sléttum brúnum með áherslu á loftaflfræði. Mynd DAIMLER.
Nýi bíllinn notar EVA rafmagnsgrunn Mercedes sem einnig er notaður í EQS, rafmagnsútgáfu af S-Class sem er flaggskip bílaframleiðandans.
EQE verður smíðaður í Þýskalandi og Kína. Mynd DAIMLER.
Fólksbíllinn verður smíðuð í verksmiðjum Mercedes í Bremen í Þýskalandi og Peking í Kína.
Í yfirlýsingu sagði Daimler einnig að Mercedes-AMG muni frumsýna öflugan hágæða rafmagnsfólksbíl á sýningunni í München.
(Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Er ekki nóg að hafa grafið einn Plymouth í Tulsa og geymt hann neðanjarðar í hálfa öld? Jú, það ættu nú flestir að geta sammælst um. En hvað ef ég fullyrti að þessi sem grafinn var upp árið 2007 og fjallað um í fyrradag hafi ekki verið sá eini? Það þætti ótrúlegt, en satt er það engu að síður.
Ekki er síður lagt upp úr skreytingum bílanna en fólksins sem er í forgrunni gleðigöngunnar eða Gay Pride víðsvegar um heiminn. Ýmsir bílaframleiðendur hafa komið með alveg spes útgáfur af bílum í tilefni Gay Pride í gegnum tíðina og hefur úrkoman heldur betur verið skrautleg.
Eitt besta atriði úr íslensku sjónvarpi er að margra mati „lögguatriðið“ úr áramótaskaupi sjónvarpsins árið 1984. Bar skaupið heitið „Rás 84 — frjáls og óháð“. Reyndar er þetta fyrsta skaupið sem undirrituð man eftir en það er vegna bílsins í þessu tiltekna atriði.
Árið 2019 voru framleiddar 92 milljónir ökutækja. 25 milljónir þeirra voru atvinnubílar...