Kemur McLaren með sportjeppa?
McLaren kannar mögulega jeppagerð, en það er enn allt óvíst
Næstum hver einasti ofurbílaframleiðandi er nú að smíða sinn eigin sportjeppa, en McLaren er enn í biðstöðu
McLaren er enn að íhuga að fara inn á jeppamarkaðinn, að sögn eins af æðstu stjórnendum vörumerkisins.
McLaren hefur verið að selja hluta af sögulegu safni sínu til að greiða fyrir komu Artura-gerðarinnar. Gerð sportjeppa gæti verið aðlaðandi til að koma með nýtt sjóðstreymi til að halda fyrirtækinu á floti. Mynd: McLaren
Ef McLaren sækist eftir sportjeppa er ólíklegt að það verði gert með því að fara einföldu leiðina.
Í viðtali við Autocar fyrr á þessu ári gaf Leiters til kynna að McLaren ætti að sækjast eftir gerðum í samræmi við „erfðaefni“ vörumerkisins og að það „ætti ekki að koma með klassískan jeppa“.
Í bili eru jeppahugmyndir fyrirtækisins enn á könnunarstigi, að sögn Corstorphine.
Farartæki fyrirtækisins eru glæsileg og stór kennimerki auðs og frammistöðu, eins og svo margir bílar Lamborghini sem komu á undan.
Hvort þessi sérstaða verði gerð ómerkilegri með því að framleiða jeppa munu þeir sem bera ábyrgð á framtíðarstefnu vörumerkisins íhuga vel.
(greinar á AutoSpies og TheDrive)
Aðrar umfjallanir
Það muna flestir bílaáhugamenn efir DeLorean bílnum frá DeLorean Motor Company (DMC). Nú er loks eitthvað að frétta af framleiðandanum.
Að stjórna hraða ökutækis með því að vísa til hraðamælis bíls er eðlilegt fyrir hvaða ökumann sem er. Raunar, án hraðamælisins væri ómögulegt að aka á vegum án þess að brjóta hámarkshraða. Svo hvar átti þessi mikilvægi mælikvarði upptök sín?
Nýi 911 Targa 4S Heritage Design frá Porsche, sem er nýkomin fram á sjónarsviðið, er sá fyrsti af fjórum klassískum sérútgáfum. Gerðin markar...
Nýlegar tölur frá Jato Dynamics sýna mikinn samdrátt í bílasölu í Evrópu í nóvember. Í Noregi er staðan allt önnur og þó eru biðlistar þar lengri en nokkru sinni fyrr.