Enn heillast undirrituð af þessu magnaða skipulagi og auðvitað er gaman að sjá alla vörubílana „dömpa“. Þetta er svei mér ef ekki markvissara skipulag en maður sér á góðum degi í íslensku unglingavinnunni.
Það er stutt síðan hér birtist myndband af svipaðri vinnutörn, örugglega frá svipuðum slóðum. Það er kannski auðveldara að átta sig á hvernig risavaxið sjúkrahús er reist á 10 dögum í Kína þegar maður sér skipulagið að baki.
Fólkið með fánana er ekki bara að sautjándajúní-ast heldur er það að gefa vörubílstjórunum merki. Þetta eru eins konar umferðarfánar.
Hin vinnutörnin:
Og fyrst minnst er á Kína:
Aðrar umfjallanir
Það var iðulega fremur tómlegt í húsnæði Sölunefndar varnarliðseigna á Grensásvegi númer 9 - alla vega í minningunni. Sápulykt í bland við útlandalykt sem svo blandaðist „bílalykt“.
Fiat hefur í gegnum tíðina smíðað marga ansi skemmtilega bíla. Ummæli Oliver Francois, forstjóra Fiat hafa birst í nokkrum...
Citroën er að undirbúa fyrsta nýja stóra fólksbílinn sinn til sölu á alþjóðlegum markaði í átta ár þar sem vörumerkið leitast við að koma með arftaka C6 sem flaggskip...
Það hlýtur að gerast nokkuð oft að fólk komi með bíllinn á verkstæði þegar það er búið að gera illt verra með því að „laga“ sjálft. Jæja, hér er skammtur vikunnar af svoleiðis tilvikum.