Gleymdir en ekki grafnir
Við höfum fjallað áður um bílana sem féllu í gleymsku austur á Héraði. Í dag voru nokkrir “gullmolar” boðnir til sölu á Fésbókinni. Í þessu holli erum við að tala um eitt stykki Trabant sem muna má fífil sinn fegurri, tvo ameríska pallbíla og nokkra aðra sem eflaust væri gaman að gera upp.
Reyndar hefðum við hjá Bílabloggi mest gaman að því að heyra um sögu þessara bíla ef einhver þekkir hana. Við bjóðum þeim aðila einkaviðtal.
Bílarnir eru auglýstir á Fésbókarsíðunni Fornbílar og tæki til sölu. Þarna má sjá nokkra gerðarlega bíla eins og Bedford flutningabíl sem síðast fékk skoðun árið 1986 en bíllinn var áður í eigu Kaupfélags Árnesinga.
Einnig má sjá þarna Ford D. 800 árgerð 1966 en fyrsti eigandi þess bíls var Gunnlaugur Sigurðsson vörubílstjóri á Egilsstöðum. Síðan var bíllinn í eigu Verslunarfélags Austurlands.
Auðvitað er lykilatriði að gera svona kagga upp. Vonandi finnast einhverjir handlagnir sem eru tilbúnir að takast á við það mikla verk. Og vonandi semst mönnum um verðið. Ætla má að virði gripanna verði meira eftir því sem lengra líður á endurgerð bílanna en fyrir hana.
Aðrar umfjallanir
Það má kannski segja að margir hafi gengið í gegnum erfitt „breytingaskeið“ þegar bílnúmerakerfinu á Íslandi var breytt fyrir rúmum þrjátíu árum. Flosi heitinn Ólafsson skrifaði grein í apríl 1988 um þann harm að „missa númerið“ sitt. „Ég verð desperat,“ eins og hann orðaði það.
Nýtt umferðarmerki í Bengaluru á Indlandi kom sumum á óvart í vikunni en það er merkið hér fyrir ofan. Vísar það ekki til þess að keiluhöll sé í nágrenninu heldur merkir það að í sjóndaprir gætu verið gangandi í nágrenninu og því mikilvægt að ökumenn fari með gát. Hér eru fleiri sjaldgæf umerðarmerki.
Hvað svo sem segja má um Mercedes-liðið í Formúlu 1 þá kann það að kveðja fólkið sitt almennilega – alla vega ef það er gert eins og í kvöld þegar ökumaðurinn Vallteri Bottas sagði formlega skilið við liðið.
Það er ekki bara í Andrésblöðum sem keppt er í kappakstri aftur á bak. Það hefur nefnilega líka verið gert í „hinni“ veröldinni. Þ.e. í raunveruleikanum. Allt sem gat klikkað, klikkaði í svona kappakstri en útkoman var oftar en ekki óheyrilega fyndin sýning!