Þúvarpið, eða YouTube eins og það er almennt kallað, er ótrúlegt fyrirbæri. Þar ná myndbönd flugi og heimurinn verður sjúkur í eitthvað sem enginn vissi af nokkrum vikum eða mánuðum fyrr. Hér er gott dæmi.
Fyrir fimm mánuðum var myndband sett inn af furðulegri keppni sem felst í því að stökkva á handónýtri bíldruslu yfir slatta af öðrum handónýtum bíldruslum. Sumir stökkva með hjólhýsi aftan í. Þá auðvitað handónýt hjólhýsi til allt sé í stíl.
Á fimm mánuðum eru áhorf tæplega 12.000.000. Það gerir 2.400.000 á mánuði, eða um 80.000 á dag.
Hér er myndbandið og dæmi nú hver fyrir sig!
Fleira úr heimi furðusportsins:
Aðrar umfjallanir
Það er ekki merkilegt að fylgjast með einhverjum þvo bíl, svona alla jafna. En það er hrein unun að horfa á WRC-rallýbíla innan um allar snekkjurnar í Monte Carlo. Jú, það er verið að skola af bílunum og það er bara fínt.
Volkswagen er smám saman að opinbera frekari upplýsingar um framleiðsluútgáfu ID.Buzz hugmyndabílsins. Við sáum bílinn sem mjög dulbúna sjálfakandi skutlu í september 2021 og nýjasta myndin sem þýski bílaframleiðandinn sendi frá sér sýnir rafmagnsbílinn í mun minni felulitum.
Árið 2019 voru framleiddar 92 milljónir ökutækja. 25 milljónir þeirra voru atvinnubílar...
Seinni vika Dakar-rallsins hófst á sunnudaginn, sem þýðir að nú eru bara fáeinir dagar eftir. Eitt og annað hefur gengið á í fyrri viku keppninnar en sem betur fer hefur þetta að mestu verið stórslysalaust. Eftir sem áður kemur þyngdarlögmálið mönnum aftur og aftur í opna skjöldu