Hann kallar sig Professor Pardal á YouTube. Það er skemmtilegur húmor, því Georg gírlausi heitir nefnilega Professor Pardal á portúgölsku og spænsku. Gyro Gearloose heitir þetta sköpunarverk Carls Barks á ensku.
Georg gírlausi „að störfum“. Carl Barks kynnti þennan karakter árið 1952.
Hinn brasilíski uppfinningamaður sem hér um ræðir hefur að undanförnu verið að græja gufuvél og hefur gert ýmsar tilraunir með hana. Það er áhugavert að fylgjast með þessu hjá honum og hér er sýnishorn af framvindu fortíðarinnar í nútímanum:
Aðrar umfjallanir
Við höfum þegar orðið vör við það að með tilkomu rafbíla hefur ýmislegt breyst í hönnun bílanna, en núna er þetta farið að ganga aðeins lengra, því Rolls-Royce hefur breytt merkinu „Spirit of Ecstasy“.
Fyrsti rafknúni bíll Toyota á nýja e-TNGA grunninum, sem aðeins notar rafhlöður verður afhjúpaður í apríl...
„Það besta við þetta heimili er hið síbreytilega útsýni,“ segir fyrrum skrifstofublókin Matt Payne sem sagði bless við skrifstofuna fyrir fullt og allt og keypti geggjaðan hertrukk. Hann hefur ferðast um Mongólíu, Gobi eyðimörkina og skoðað heiminn frá heimilinu: DAF T244.
Hinn magnaði karakter Günther Steiner, liðsstjóri Haas-liðsins í Formúlu 1, er búinn að átta sig á hvað brautin í Jeddah minnti hann á.