Það getur verið alveg bagalegt þegar maður er búinn gera allt klárt fyrir upptöku, kominn í karakter, tökuvélin „rúllar“ og þá... kemur einhver og stelur senunni. Örn er nefnilega mættur og ekki keppir maður við hann um athyglina.
Renante Balbuena, 33 ára gamall þjónn frá Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, var í fríi í Tanay á Filippseyjum þegar hann ákvað að láta slag standa og taka upp fyrsta vídeóbloggið sitt. Það má kannski kalla það eins konar „bílablogg“ þar sem hugmyndin var að aka rólega um og blaðra á meðan.
Ekki var hann búinn að aka nema örfáa metra þegar „þetta“ gerðist og Renante hefur enn ekki tekið upp fyrsta formlega vídeóbloggið sitt. Þetta er nú samt alveg áhugaverð byrjun á ferli vídeóbloggara.
Eðli máls samkvæmt er fátt hjá okkur að finna úr dýraríkinu en hér er eitthvað:
Aðrar umfjallanir
Við sögðum í morgun frá því að BMW sé að hætta með litla rafbílinn i3 og núna er röðin komin að því að greina frá því að Citroen C1 hættir.
Ford Bronco jeppinn kemur til Evrópu á næsta ári. Ford hefur tilkynnt að endurfæddur torfærubíllinn verði fáanlegur í „stranglega takmörkuðu magni“ í völdum Evrópulöndum...
Hann safnar skiltum, bílum, auglýsingaspjöldum, standklukkum, veggklukkum; Hann á frumgerð Batmobile og heilan helling af öllu mögulegu! Allt þetta mögulega er í „bílahellinum“ hans neðanjarðar í London.
Það er sko hægt að gera ýmislegt á mótorhjólum, enda allar leiðir færar þeim sem vel eru hjólandi. Hér er myndband sem var einu sinni nýtt. En það er langt síðan og það er í góðu lagi. Þetta er margverðlaunuð auglýsing frá 2010 fyrir BMW S 1000 RR og það sem ökumaðurinn gerir…