Framleiðslu Citroen C1 hætt
Citroen tilkynnir um endalokin á vinsælu C1 gerð sinni áður en nýr Ami kemur
Við sögðum í morgun frá því að BMW sé að hætta með litla rafbílinn i3 og núna er röðin komin að því að greina frá því að Citroen C1 hættir.
Samkvæmt Citroen seldi C1 meira en 1,2 milljónir bíla í framleiðsluferli sem náði frá árinu 2005 til 2022. Bíllinn kom fram í tveimur kynslóðum og báðar voru smíðaðar í Tékklandi á sömu framleiðslulínu og Peugeot 108 og Toyota Aygo systurbílar C1.
Toyota hefur síðan tekið yfir Kolin verksmiðjuna þar sem PSA-Toyota samreksturinn smíðaði þetta „borgarbílatríó“ og hefur opinberað arftaka sinn á Aygo: Sportjepplinginn (Crossover) Aygo X.
Ami kemur ekki beint í staðinn fyrir C1, því Ami er mun minni, 2,41 metri að lengd og er aðeins með sæti fyrir tvo. 5,5kWh rafhlaða skilar drægni upp á 90 km - með fullri hleðslu sem tekur um þrjár klukkustundir, en hámarkshraði er um 45 km/klst.
Aðrar umfjallanir
Jaguar Land Rover við Hestháls frumsýnir nk. laugardag, 8. október, nýjar kynslóðir tveggja bíla frá Land Rover í Bretlandi. Um er að ræða Range Rover Sport...
Peugeot íhugar að einbeita sér að því að endurhanna flaggskip sportjeppalínu sinnar, 5008, í hagkvæmari gerð...
Það er merkilegur áfangi að verða hálfrar aldar gamall. Nú, árið 2022, eru liðin 50 ár síðan Fiat 126 kom á markað og var þeim litla bíl ætlað stórt hlutverk: Hann tók við af Fiat 500. Eða gerði hann það? Það var ætlunin í upphafi en hjörtu manna vann hann þó ekki á sama hátt og Fiat 500.
Sjeik er alveg agalega spes orð. En sá sem er sjeik hlýtur að eiga skrautlegan bíl. Porsche 911 Turbo S sem var í eigu kúveiska sjeiksins Nasser Mohammad al-Ahmad Al-Sabah er einmitt í lit sem nefnist Vanilla Yellow.