Hvað er nú að gerast? Í morgun frumsýndi bílaframleiðandinn stórfurðulega stuttmynd. Hún er um G-Class jeppann en það getur hæglega farið framhjá manni. Demonískt, hryllilegt og andsamfélagslegt… Já, þetta er sannarlega efni í eitthvað sem deilt verður um.
Skjáskot/YouTube
Hér er einstakt tækifæri til að sjá allar furðulegustu fyrirsætur heimsins samankomnar og í samanburðinum verður Star Trek-liðið bara eins og samansafn sætra kettlinga. Já, svona er þetta nú spes myndband, að mati undirritaðrar, en myndi sér nú hver skoðun sjálfur.
Þetta er svo brakandi nýtt að í morgun þegar ég sá herlegheitin voru ekki margir búnir að horfa. Um tvö þúsund manns. En nokkrar athugasemdir höfðu verið gerðar og hér eru fáein sýnishorn:
Rétt er að taka fram að viðkvæmir og myrkfælnir ættu bara að sleppa því að horfa á þetta myndband.
Aðrar umfjallanir
Endurnýjunarhemlun breytir hreyfiorku bílsins í rafmagn til að hlaða rafhlöðuna og auka skilvirkni og nýtingu orkunnar...
Í ágúst árið 1984 opnaði tívolí á Melavellinum í Reykjavík. Þar var bæði hægt að aka gókartbílum og klessubílum. Öll tæki voru keypt að utan, nema klessubílarnir sem fengnir voru á kaupleigu.
„Jæja, á nú að selja fólki ryðgað hrúgald á hjólum?“ Þetta hugsaði ég þegar Ford Panel trukkur frá árinu 1959 tróð sér á tölvuskjáinn. En ekki er allt sem sýnist.
Árið 2025 kemur fyrsti BMW rafbíllinn byggður á „Neue Klass“ grunninum...