„Jæja, á nú að selja fólki ryðgað hrúgald á hjólum?“ Þetta hugsaði ég þegar Ford Panel trukkur frá árinu 1959 tróð sér á tölvuskjáinn. En ekki er allt sem sýnist.
„Það er alla vega teppi aftur í honum,“ hélt kjaftaskúmurinn í kollinum á mér áfram að röfla. En þegar betur er að gáð er bíllinn ekki ónýtur. Nei, hann á að vera svona. Hann er með 350 V8 vél og ég veit ekki hvað og hvað.
Jú og svo er teppi aftur í honum.
Hann er til sölu í Bandaríkjunum og kostar um 3 milljónir króna eða 22.500 dollara.
Aðrar umfjallanir
Maður hefur ekki prófað neitt nema maður hafi farið í alvöru Tuk Tuk kappakstur. Þar reynir sko á hæfnina! Hér er bráðfyndið myndband frá Sri Lanka þar sem keppt er á Tuk Tuk og svei mér ef þetta er ekki skemmtilegt!
Rétt á hælana á hinum nýja Range Rover kemur Range Rover SV, jepplingur frá Land Rover Special Vehicle Operations sem Land Rover USA segir að hafi nægilega mikið af „einstökum hönnunaratriðum og efnisvali“ til að hann bjóði viðskiptavinum „meira svigrúm til að sérsníða en nokkru sinni áður“.
Við höfum verið að fjalla nokkuð um nýja rafbílinn fra Hyundai, Ioniq 6, og núna í dag er loks búið að fraumsýna bílinn formlega...
Ford hefur neyðst til að halda aftur af afhendingu á sumum gerðum vegna þess að það er að verða uppiskroppa með merkin - já, bláa sporöskjulaga sem