Mikill rafbílameistari í Bretlandi sem sérhæfir sig í að rafvæða fornbíla, er núna með óstjórnlega spennandi verkefni í vinnslu. Þetta verður svo mikil snilld að… Afsakið! Leyfum manninum að fletta ábreiðunni af því sem hann fullyrðir að muni taka 1000 hestafla Teslu Plaid í nefið.
Dagsdaglega vinna karlarnir (sem við sjáum í meðfylgjandi myndbandi) að breytingum á bílum, allt eftir óskum viðskiptavina. Þetta er aftur á móti einkaverkefni sérfræðingsins Richards hjá ECC (Electric Classic Cars) sem hann dundar við þegar tími gefst til.
Stóri munurinn er sá að í þessu verkefni getur hann búið til öflugra tryllitæki en maður þorir að ímynda sér. Tryllitæki sem getur verið fislétt og ekki þarf að lúta takmörkunum götuskráðra bíla: þetta tryllitæki ætlar nefnilega ekki út í umferðina heldur í kappakstur!
Það þarf nú eitthvað verulega öflugt til að merja þennan!
Markmiðið að „mala“ Teslu Plaid
Fullyrt er í myndbandinu að Tesla Model S Plaid megi hreinlega vara sig þegar þessi verði kominn á ról. Plaid er rúmlega 1000 hestöfl og er í sannleika sagt algjört hröðunar-ofur-sega-mega-fyrirbæri! Ef þið hafið ekki heyrt um slík fyrirbæri þá er það skiljanlegt en 2021 Tesla Model S Plaid er innan við 2.2 sekúndur úr kyrrstöðu upp í 100 km/klst og hefur sá bíll farið kvartmíluna á 8.944 sekúndum sem gerir bílinn að hraðasta rafbíl veraldar, ef ég skil þetta rétt.
Það er því stór fullyrðing þegar Richard segist ætla að „mala“ Teslu Plaid en í myndbandinu útskýrir hann meðal annars hvað þurfi (5:41) til að gera það! Virkilega fræðandi og snjallt!
Mig langar að fylgjast með þessu verkefni frá byrjun og það mun ég gera. Spurningin er aftur á móti sú hvort þið, kæru lesendur, hafið áhuga á því líka? Endilega skrifið athugasemdir eða „lækið“ þetta á Facebooksíðunni svo ég hafi einhverja hugmynd um hvort áhugi sé fyrir frekari umfjöllun!
Aðrar umfjallanir
Mercedes-liðið í Formúlu 1 hefur dregið allar kærur, skammir og fúkyrði „til baka“ og vill nú að allir verði vinir. Annar eins viðsnúningur er sjaldséður á svo skömmum tíma en nú ætlar liðið að einbeita sér að því að „byggja upp jákvæða ímynd Formúlu 1“.
Þeir hjá Lego eru sannarlega að kynda nostalgíuklefann ærlega þessa dagana! Ekki er langt síðan Porsche 911 kom á markað í „fullorðins“línu leikfangaframleiðandans, Creator Expert.
Ástrali að nafni John McGregor deildi furðulegustu bílasögu sinni á veraldarvefnum fyrir tveimur árum. Sagan er nokkuð eldri og segir það kannski sitt um aldur hennar að fjölskyldubíllinn var af árgerðinni 1952. En sagan er mögnuð!
Volvo bílar munu afhjúpa annan meðlim í fjölskyldu rafhlöðudrifinna ökutækja og deila upplýsingum um rafvæðingu þess bíls í byrjun mars...