Hver man eftir þessum?
Mazda 818 eins og við Íslendingar þekktum hann framleiddur af Mazda í Japan á árunum 1971 til 1978. Þar var aðalnafn bílsins Mazda Grand Familia. Asíumegin á hnettinum var þessi bíll seldur sem Mazda 808 og í Bandaríkjunum sem Mazda RX-3 og þá með rotary vél.
Mörgum þótti þetta flottur og sportlegur bíll og völdu hann frekar en Corolla á þeim tíma.
Almennt var Mazda 818 með fjögurra strokka línuvél og við munum hann þannig hér á landi.
Hér er vinur minn og Suðurnesjamaðurinn Erlingur Bjarnason. Hann er einn af þeim sem átti Mazda 818 og minnist hans með söknuði. „Þetta var frábær bíll,“ segir Erlingur.
Tveggja dyra módelið af Mazda 818 var ansi flottur og vildu margir ungir bílstjórar eignast svoleiðis bíl enda sportlegur. Þá var í tísku að setja hvíta hringi, drullusokka að framan og aftan sem náðu upp á brettin og svo kannski krómhringi – það þótti gera bílinn nánast eins og hann væri á áflelgum.
Grillið var uppfært á milli ára.
Það er alveg 929 svipur þarna. Mazda hefur þótt framleiða sportlega og skemmtilega bíla í gegnum tíðina.
Nú svo ef nota átti bílinn eitthvað úti á landi settu menn toppgrind á hann og svo grjótgrind til að verja ljósabúnaðinn.
Þetta þótti vel í lagt á þessum tíma. Mælaborðið var flott og eins og svipaði til amerísku kagganna.
Menn voru ekkert að kvarta þó plássið væri af skornum skammti.
Hér er pláss fyrir tjald og fjóra svefnpoka ásamt tilheyrandi í útileguna.
Mazda 818 var hugsaður til að keppa við bíla eins og Toyota Corolla, Nissan Cherry og Mitsubishi Lancer sem allir voru þekkilegir bílar á þessum tíma.
Þessi hefur fengið smá yfirhalningu.
Mazda 818 kom með þremur vélum, 1300, 1500 og aðeins seinna 1600 rúmsentimetra vélum. Hetstöflin voru í kringum 90 sem þótti bara ansi vel í lagt á þessum tíma. Hins vegar togaði vélin ekki nema um 130 Nm.
Bílaborg var fyrst á Hverfisgötu 76 í Reykjavík.
Bílaborg, Hverfisgötu 76 var með umboð fyrir Mazda á áttunda áratugnum og þeir auglýstu bílinn sem fjölskyldubíl sem ekki væri of lítill né heldur of stór.
Hér eru þeir þrír bílar sem Bílaborg byrjaði á að flytja inn. Mazda 1300, Mazda 818 og Mazda 616. Ég man eftir að hafa farið með föður mínum á Hverfisgötuna árið 1972 til að sækja splunkunýjan Mazda 616, ilmandi af ryðvarnarlykt og með plasti á sætum.
Undirritaður man eftir þessum bíl sem fjögurra dyra stallbaki, tveggja dyra kúpubaki og fjögurra dyra skutbíl.
"818 er svar við nokkrum vandamálum nútímans", segir í auglýsingu frá Bílaborg.
Í gegnum tíðina hafa eigendur breytt þessum bílum eins og svo mörgum öðrum japönskum smábílum en rotary vél Mazda hefur alltaf þótt spennandi í gegnum tíðina þó endingin hafi kannski ekki verið upp á sitt besta. Hún gaf ansi skemmtilegt hljóð.
Myndir: E&R Classic og fleiri vefsíður.
Aðrar umfjallanir
Volvo Cars jók söluna á heimsvísu á tengitvinnbílum um 80 prósent á fyrri helmingi ársins, sem leiddi af mikilli eftirspurn í Evrópu. Salan setti...
Njósnaljósmyndarar Auto Express hafa séð uppfærðan Hyundai i30 N aftur - að þessu sinni klæddan í mun minna af felulitum. Þessi bíll mun fylgja uppfærðu...
Á þessum árstíma eru önnur merki um það að sumarið sé að koma eru bílaumboðin þegar þau halda kynningar á nýju bílum, frumsýna kannski nýja...
Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll með ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, 18“ álfelgum og innbyggðri...