Rafbíllinn Mazda MX-30 verður forsýndur hjá Brimborg laugardaginn 26. september.
Nýr Mazda MX-30 er 100% hreinn rafbíll með ríkulegum staðalbúnaði t.a.m bakkmyndavél, forhitun sem tryggir alltaf heitan bíl, vegaleiðsögn, 18“ álfelgum og innbyggðri varmadælu ásamt víðtækri 5 ára ábyrgð og 8 ára ábyrgð á drifrafhlöðu.
Við hönnun bílsins lagði Mazda mikla áherslu á að lækka mengunarfótspor rafbílsins allan líftíma bílsins, við framleiðslu, notkun og förgun.
Mazda MX-30 kostar frá 3.980.000 kr. og fæst með grænni fjármögnun og 30% útborgun fyrir aðeins 32.967 kr. á mánuði. Auk þeirra þæginda sem heimahleðsla býður upp á má spara allt að 16.000 kr. á mánuði með því að keyra á íslenskri orku í samanburði við meðalstóran bensínbíl.
Á forsýningunni verður í boði ráðgjöf við kaup og uppsetningu hleðslustöðva, kynning á ívilnunum sem eru í boði fyrir hleðslustöðvar og fjármögnun þeirra.
Forsýningin er í sýningarsal Mazda að Bíldshöfða 8 frá kl. 12-16.
Smelltu hér til að kynna þér allt um Mazda MX-30 100% rafbíl.
Aðrar umfjallanir
Waldorf Astoria? Hljómar vel! Það er fleira tengt því fræga hóteli en „jólasalatið“ sem mörg okkar kalla Waldorfsalat. Já, til að mynda hefur Chevrolet Nomad verið tengdur við Waldorf Astoria frá því hann var kynntur þar á sýningu árið 1954.
Háskólanemi að nafni Nathan Lee sat í bílnum sínum á bílastæðinu við stúdentagarðana þegar hann sá risastórt tré falla þvert yfir stæðið. Hann náði að forða sér en tveir bílar urðu fyrir trénu. Miðað við útlitið á öðrum bílnum er eins gott að hann var mannlaus þegar þetta gerðist!
Mercedes-Benz hefur sterka trú á framtíð fjölnotabíla (MPV) og bíla sem eru byggðir svipaðir og sendibílar, en hannaðir fyrir farþega og þess vegna hafa þeir stöðugt...
BERLÍN – Framleiðsla Volkswagen í Kína, efld með nýrri verksmiðju í Anhui héraði, mun geta smíðað 1 milljón rafbíla á ári frá og með 2023.