Í síðustu viku var spurt hvað maður nokkur, ökuleiknimeistari að sögn, væri eiginlega að gera. Þá sýndi hann í myndbandi ökuleikni sína á kjánalega mjóum vegi þar sem hann sneri bíl við. Nú hefur komið í ljós að hinn mikli meistari vissi ekki einu sinni sjálfur hvað hann var að gera.
Úr myndbandi frá síðustu viku. Hvað var maðurinn að hugsa? Milljón á dag vildi sjá þetta... Skjáskot/YouTube
Svo ég vitni í þá ágætu grein þá sagði þar nefnilega að á YouTube rás sem einungis sýnir manninn snúa bíl við á þröngum vegbút væri áhorfið svo gríðarlegt að það náði ekki nokkurri átt! Milljón áhorf á dag. En af hverju?
„Það sem einkennir myndböndin (sem virðast öll mjög keimlík) er að undir þeim er leikin afar dramatísk tónlist, það er mikil spenna og voðalega fær bílstjóri og gríðarlegt áhorf en…já en til hvers er hann að þessu?“
Menn hentu gaman að gaurnum í athugasemdum undir myndböndunum á YouTube.
Gátan ráðin
Sennilega er hægt að svara þessari vikugömlu spurningu núna: Allir þessir áhorfendur hafa vafalaust verið að bíða eftir að karluglan húrraði niður þaðan sem hundakúnstirnar fóru fram. Blobbs!
Þetta er örugglega eitthvað í ætt við sápuóperur og raunveruleikaþætti og þess vegna var þetta svona vinsælt. Nema hvað að spennustigið virðist hafa hríðfallið eftir þetta.
Já, nú er ekkert gaman lengur. Skjáskot/YouTube/DrivingSkill
Það eru sko ekki milljón áhorf á þetta rúmlega sólarhringsgamla myndband. Nei, ekki einu sinni fimmtíu þúsund.
…að honum tækist þetta næst.
Hann kemur ekki til með að húrra þarna niður og ekkert spennandi að fylgjast með ökuleiknimeistaranum lengur.
Aðrar umfjallanir
Volkswagen Golf náði aftur sæti sem mest seldi bíll Evrópu í júlí eftir að bíllinn missti fyrsta sæti í tvo mánuði á undan til Renault Clio...
Autocar segir í dag að BMW sé að þróa rafmagnsútgáfu af 3 seríunni til að sitja við hlið 523...
Nýr Subaru Impreza verður frumsýndur fimmtudaginn 17. nóvember
Í rúm 50 ár hafa áhugasamir bílaunnendur flykkst á Barrett-Jackson bílauppboðin. Barrett-Jackson er einn stærsti og þekktasti uppboðsaðili...