Það var á þessum degi, 27. janúar [greinin er frá 27. janúar 2022], fyrir 123 árum setti belgískur ökumaður, kallaður „Rauði djöfullinn“, hraðamet á rafbíl. Já, gott fólk, það er alveg magnað að maðurinn hafi náð 80.3 kílómetra hraða á klukkustund á rafknúnu ökutæki árið 1899.

Svo hratt hafði enginn farið á landi en met Gastons frá 18.desember 1898 var 63.13 km/klst.

image

Georges Bouton og Gaston, greifinn af Chasseloup-Laubat, á gufuknúna ökutækinu Trépardoux & Cie. Dog Cart frá árinu 1885. Myndin gæti verið frá 1887.

Ástæða þess að ég kallaði manninn, sem átti fyrsta hraðametið, bara Gaston er sú að hann hét nefnilega Charles-François Gaston Louis Prosper de Chasseloup-Laubat. Það er alveg hrikalega langt en raunar var Gaston greifinn af Chasseloup-Laubat, og því í lagi að skrifa „bara“ Gaston de Chasseloup-Laubat.

image

Greifinn Gaston de Chasseloup-Laubat á farartækinu Jeantaud Duc

Gaston de Chasseloup-Laubat fékk að vera heimsmethafi í næstum mánuð en þá kom okkar maður, Jenatzy, á fleygiferð og sló metið.

Tíu dögum seinna sló Jenatzy eigið met þegar hann náði sem fyrr segir, 80,3 km/klst.  

Heimsmetametingur

Haldið þið ekki að greifinn hafi þá komið tvíefldur á 1.400 kílóa rafbíl  með 26.8 kW rafmótor og náði þann 4. mars (jú, það er enn árið 1899) að slá metið á hvorki meira né minna en 92 km/klst.

image

Á svona rafbíl sló Jenatzy fyrsta metið

Þann 29. apríl 1899 var tímabært að slá met greifans. Greifinn hafði þá í margar vikur átt metið og það fannst Jenatzy sennilega alveg nógu langur tími. Á rafbíl sem hét Jamais Contente göslaðist hann á 105.88 km/klst og var þar með fyrstur allra til að komast yfir 100 kílómetra hraðann.

image

Jenatzy hjónin á skreyttum Jamais Contente

Eigið grín varð honum að bana

Vesalings Jenatzy náði ekki háum aldri en hans eigin prakkaraskapur varð honum víst að bana, ef eitthvað er að marka frétt í New York Times frá 1913.

Jenatzy var við veiðar ásamt félaga sínum Alfren nokkrum Madoux. Þar sem þeir voru úti í skógi að leita uppi bráðina fékk sprelligosinn Jenatzy þá afar slæmu hugmynd að laumast bak við runna og þar gaf hann frá sér dýrahljóð. Svona ætlaði hann að hrekkja vin sinn.

Þetta gerði hann nú ekki aftur, blessaður, því vinurinn skaut auðvitað á runnann og hitti þann sem gaf frá sér dýrahljóðin. Madoux tókst að drösla helsærðum manninnum upp í bíl og á leiðinni á sjúkrahúsið fékk Jenatzy ósk sína óvænt uppfyllta. Hann hafði nefnilega sagt einhverju sinni að ef hann mætti ráða þá vildi hann helst deyja í bíl af gerðinni Mercedes.

Og í Mercedes dó hann, á leið á sjúkrahúsið, árið 1913.

image

Camille Jenatzy á Mercedes. Hann sagðist vilja deyja í Mercedes og það átti hann eftir að gera. En ekki í kappakstri, eins og hann hafði kannski búist við.

[Greinin er frá 27. janúar 2022]

Annað úr sarpi bílasögunnar:

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is