Það er nú ekki á hverjum degi sem peningaflutningabíll tekur upp á því að „opna sig“ fyrir almenningi. Það gerðist hins vegar í gær þegar bryndreki mikill opnaðist að aftanverðu á I5 hraðbrautinni í San Diego.

Að minnsta kosti tveir digrir peningasekkir stappfullir af $20 seðlum, ultu út úr bílnum á blússandi fart og upphófst þá mikill peningahvirfill yfir hraðbrautinni og raunar um hana alla. Já og allt um kring.

image

Skjáskot af YouTube

Það er óhætt að segja að einlæg gleði hafi geislað af þeim sem leið áttu um. Þó hvorki peningaflutningamennina sem óku bílnum, né heldur lögreglumenn sem komu á svæðið skömmu eftir atvikið.

Sá á EKKI fund sem finnur

Hvort læsing afturhlerans sé akkilesarhæll umræddrar tegundar bifreiða eður ei, þá er morgunljóst að þennan tiltekna afturhlera þarf að laga, ef ekki hreinlega skipta út. Nú, eða í versta falli, gefa bílnum allt annað hlutverk.

Sem fyrr segir, einkenndi mikil gleði þann fjölda vegfarenda sem stoppaði við og hjálpaði til við að tína seðlana upp. Það var raunar í óþökk þeirra sem báru ábyrgð á fjármununum, einkum og sér í lagi þegar allt þetta hjálpfúsa fólk hélt ferð sinni áfram og tók seðlana með sér.

Það var, og er víst harðbannað þar sem seðlarnir voru ekki þeirra eign.

image

„Sá á fund sem finnur“ gilti ekki akkúrat þarna. Lögreglan handtók einhverja sem töldu sig fundið sjóðinn góða við enda regnbogans (hraðbrautarinnar) og allt var víst bara í algjörri klessu á hraðbrautinni í gær.

Myndbönd geta verið tvíeggjað sverð

Nú, það sem gerði lögreglunni ögn auðveldara fyrir að hafa uppi á seðlasöfnurunum sem stungu af, voru ótal myndbönd sem fólk deildi í ofsakæti rétt eftir „peningafundinn“. Eins og þetta afskaplega glaða fólk hér í þessu myndbandi.

Það kom þessum vegfarendum í koll að deila myndefni af sér baða sig í peningum, eins og Jóakim Aðalönd, og stinga svo af með seðlana standandi út úr vösum, hanskahólfi, eyrum og svo framvegis.

En það má samt segja að þetta hafi eitt gott augnablik verið föstudagur til fjár, fyrir einhverja. Alla vega í smá stund. En bíllinn er ekki í góðum málum.

Hvað finnst þér, lesandi góður? Smelltu hér til að skapa umræður við Facebookfærslu þessarar greinar! Og endilega láttu þér „líka“ við okkur á Facebook til að missa ekki af fréttum úr bílaheiminum.

Við reynsluökum bílum, tökum viðtöl, skrifum greinar og fjöllum um bíla á óhlutdrægan hátt. Umferð, öryggi, vegir, tryggingamál og allt annað sem tengist bílum og umferð. www.bilablogg.is