Benz G-jeppinn fær uppfærslu
Nýr 2022 Mercedes-Benz G-Class sást við vetrarprófanir og búist er við „léttri hressingu“
Mörgum finnst þetta vera flottasti jeppinn – öðrum finnst hann ljótur – hvað sem öllum finnst þá er verið að „hressa hann við“ þessa dagana.
Vefur Auto Express segir okkur frá því að andlitslyft útgáfa af hinum öfluga Mercedes G-Class eigi að koma á árinu (2022) og lítur út fyrir að hún fái létta endurnýjun á undan fyrsta rafknúna G-Class-jeppa vörumerkisins - sem heitir EQG - sem á að koma árið 2024.
Njósnaljósmyndari Auto Express tók þessar myndir af andlitslyftingu G-Class í vetrarprófunum og lítur hann út í stórum dráttum eins og núverandi hönnun.
Búist er við að önnur kynslóð þýska jeppans verði að mestu óbreytt hvað ytri hönnun varðar.
Margt enn lítið breytt frá upphafinu 1979
Núverandi kynslóð Mercedes-Benz G-Class kom á markað árið 2018 og skartar mörgum eiginleikum og útlitseinkennum frá upprunalega bílnum frá 1979 ofan á glænýjum undirvagni.
Búist er við smávægilegri endurbót á fram- og afturstuðurum í þessari andlitslyftingu á miðju skeiði gerðarinnar og LED afturljósin að aftan gætu fengið uppfærslu líka.
Hins vegar er búist við að helstu breytingarnar verði í farþegarými og undir vélarhlífinni, sérstaklega þegar kemur að flaggskipsgerð Mercedes-AMG G 63.
Endurbætur í innanrými
Að innan mun innréttingin loksins fá nýjustu útgáfuna af MBUX upplýsinga- og afþreyingarhugbúnaði Mercedes, þar sem G-Class er sá eini innann fjölskyldunnar sem er án hans.
Þess í stað verður áherslan lögð á nýjan hugbúnað, nýja virkni og uppfærðan rofabúnað, þar á meðal snertinæma púða í stað eldri snúningstakkanna sem er að finna í núverandi bíl, og uppfært úrval af innréttingum sem kaupendur geta valið úr.
Njósnarar hafa séð 4x4 tilraunabíla með meiri getu af G-Class allt aftur til sumarsins 2020.
Síðasti áður en allt verður rafmagnað?
Þessi endurbót á G-Class eins og við þekkjum hann gæti verið sú síðasta sinnar tegundar áður en rafmagnsútgáfan kemur.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
BERLÍN - Volkswagen ætlar að setja á markað þrjár mismunandi útgáfur af hinum væntanlegri alhliða ID Buzz sendibíl sínum...
Allt bendir til þess að Tesla Model 3 sé að verða mest selda rafknúna farartækið í Evrópu árið 2021 ásamt mikilli...
Hópur bílablaðamanna prófaði bílana 12 sem keppa til úrslita í valinu á bíl ársins miðvikudaginn 26. maí. Þessi lokaprófun fór þannig fram að hópurinn fór með bílana upp í Hvalfjörð...