Hér er hádramatísk frásögn bíleiganda úr umferðinni í Reykjavík vorið 1967. Bíleiganda var ekki skemmt þegar „ökukona“ nokkur á Miklubraut gerði óskunda í umferðinni. Það var bara eitt í stöðunni og það var að skrifa Velvakanda bréf.
Þessi mynd er frá árinu 1955 og alls ekki af Miklubrautinni heldur Bankastrætinu þar sem hjólreiðar voru greinilega bannaðar! Skjáskot/Ósvaldur Knudsen/Reykjavík 1955
Jæja, áfram hélt frásögn Bíleiganda af ökukonunni „ofan af“ Keflavíkurflugvelli:
„Og hvað halda menn, að ungfrúin hafi verið að gera þarna á akreininni: Að hleypa út farþegum, sem tóku sér góðan tíma til að klöngrast út úr bifreiðinni. Þegar athygli ungu stúlkunnar var vakin á þessu var flissað og hlegið og ekið framúr með viðeigandi flauti svona til að leggja áherzlu á alla skemmtunina. Það kann að vera að þessi umferðarmenning sé góð og gild vara þarna suður frá, en ökukonur eins og þessi, ættu þá að halda sig þar með listir sínar, en forða öðrum frá því — jafnt á Miklubrautinni sem annars staðar. Umferðarmenning sem þessi er því miður ekki einsdæmi, en frekar er sjaldséð sem betur fer að menn beinlínis leggi upp úr því að bíta höfuðið af skömminni.“
Aðrar umfjallanir
Kínverski bílaframleiðandinn BYD, einn af stærstu söluaðilum heimsins á rafbílum, mun auka framboð sitt í Evrópu frá og með þessu ári með þremur gerðum: Atto 3, litlum crossover, Tang stærri fjölnotajeppa og Han stórum fólksbíl, sögðu stjórnendur.
Julian Thomson, yfirmaður hönnunar hjá Jaguar, segir að búist sé við að meiri áhersla á aðgreining vöru og djarfari hönnun muni...
Ég var um tvítugt á níunda áratugnum. Frá 1980 til 1995 voru það smábílar með einhvers konar GTI merkingum sem gripu athyglina. Oftast voru þetta sömu boddýin...
Hér er ein frétt fyrir þá sem hafa áhuga á BMW - því myndum af því sem lítur út fyrir að vera næsta kynslóð BMW 2 Series Coupe hefur veið lekið á netið...