Myndum af nýjum 2021 BMW 2 Series Coupé lekið á netið
- Myndir af nýjum BMW 2 Series Coupe hafa litið dagsins ljós á netinu og afhjúpað hönnunina á M240i bílnum
Hér er ein frétt fyrir þá sem hafa áhuga á BMW - því myndum af því sem lítur út fyrir að vera næsta kynslóð BMW 2 Series Coupe hefur veið lekið á netið fyrir frumsýningu bílsins síðar í vikunni á Goodwood Festival of Speed 2021, sem verður haldið á Englandi dagana 8. til 11. júlí.
Þá kemur fram að nýi 2 Series Coupe sé með hófsamari hönnun, sem gæti jafnvel hafa verið undir áhrifum af X2 jeppanum, frekar en að líkjast framenda stærri 4 Series Coupe.
Sagt er að þessi M240i gerð verði með sömu 3,0 lítra túrbóbensínvél og var í BMW M440i, sem mun hafa sömu afköst eða 369 hestöfl. Aflið mun einnig verða sent á öll fjögur hjólin í gegnum xDrive fjórhjóladrifskerfi BMW og átta gíra sjálfskiptingu.
Verkfræðingar fyrirtækisins hafa einnig aukið sporvídd bílsins, til að hjálpa til við að draga úr veltuhreyfingum á yfirbyggingu - og BMW segir að nýja 2 serían muni nánast vera með fullkomna 50:50 þyngdardreifingu
Loftaflfræði á líka stóran þátt í hönnun bílsins. Flaggskipið í M240i gerðinni verður með flatan botn ásamt öðrum loftfræðileguum endurbótum.
En þeir sem vilja vita meira um þessa sportútgáfu af BMW verða að bíða eftir formlegri frumsýningu.
Aðrar umfjallanir
OSLO - Eftirspurn eftir meðalstórum gerðum Tesla jók sölu rafbíla í Noregi til muna í síðasta mánuði.
Næstu sex mánuðina ætlum við að lýsa upplifun okkar á því að aka um á rafmagnsbíl. Markmiðið er að gefa lesendum okkar innsýn í daglegt líf rafbílanotenda...
MÍLANÓ - Fiat Chrysler Automobiles munu setja á markað þrjár nýjar gerðir sportjeppa fyrir Fiat, Alfa Romeo og Maserati vörumerkin á þessu ári...
Yas Marina brautin í Abu Dhabi er ekki ný í Formúlu 1 en hún henni hefur verið breytt töluvert. Svo miklar eru breytingarnar að ökumenn sem oft hafa ekið á Yas Marina segja að hún sé eins og allt önnur braut.