Þetta gátum við! Klárað árið 2021 og nú hefjum við það næsta.
Gleðilegt ár lesendur góðir, þakka ykkur árið sem nýliðið er og hér kemur það sem ykkur fannst áhugaverðast á vefnum okkar 2021!
Það er engum vafa undirorpið að lesendur eru fróðleiksfúsir og kunna vel að meta tækni, íslenska bílasögu, ameríska bílasögu og tjah... blauta bíla. Það er virkilega áhugaverð blanda! Athugið að greinarheitið aftan við hvert númer er hlekkur á greinina sjálfa. Smellið og greinin opnast í öðrum glugga.
Tækni og góðar sögur
Af 10 vinsælustu greinunum á Bílabloggi er sú langvinsælasta af tæknilegum toga og fjallar um hversu oft á að skipta um tímareim.
Farþegi sem þýddi Tinna og samdi texta í mjólkurbíl
Næstvinsælasta greinin kemur úr nokkrum ólíkum áttum. Við sögu koma Vík, Reykjavík, Haukur Morthens, Loftur Guðmundsson, mjólk og ljón.
BattMAN kann að meta rafhlöður
Þriðja í röðinni er fremur nýleg grein og í henni er tekin fyrir RISAstór spurning: Hvað verður um rafhlöður úr rafbílum?
Skipalest sem tvístraðist
Fjórða mest lesna greinin tengist óveðri, skipalest og amerískum bílum.
Með eindæmum vinsæll bíll
Bíll sem var grjótharður nagli, hagnýtur og einfaldur: Ford Bronco 1974 gegndi hlutverki jeppans af stakri prýði.
Þetta voru fimm vinsælustu greinarnar 2021. Hér á eftir koma næstu fimm. Færra segi ég um þær því árið 2022 byrjar greinilega á því að tíminn líður eitthvað hraðar en mig minnti!
Sama gildir og um greinarnar hér fyrir ofan: Smellið á greinarheitið og greinin opnast í öðrum glugga. Þakka ykkur, lesendur góðir, fyrir árið 2021 og fyrir að hafa með áhuganum skipað þessum greinum í sæti þeirra vinsælustu á árinu!
Aðrar umfjallanir
Í dag, 14. október 2022, er Bleiki dagurinn. Við sýnum lit með því að birta myndaseríu af bleikum bílum í ríki nokkru í Mið-Ameríku; Kúbu. Á Kúbu, sérstaklega í höfuðborginni Havana, er víst nokkuð um bleika bíla.
Sindratorfæran á Hellu er eins konar vorhátíð akstursíþróttafólks og allra þeirra sem kunna að meta góða skemmtun á hjólum. Rymjandi vélar, stórkostlegir ökumenn, dásamlegt fólk allt um kring og afl sem fær hörðustu nagla til að tárast af hamingju. Já, það veit eflaust sá sem allt veit og hinir líka!’
Verstappen varð heimsmeistari í Formúlu 1, ekki bara vegna þess að hann er frábær ökumaður heldur líka vegna þess að liðið hans og liðsfélagi, Sergio Perez, unnu með honum að settu marki: Að vinna keppnina.
Nissan kynnir í sumar skilvirku og hljóðlátu rafdrifnu aflrásina e-Power fyrir Nissan Qashqai sem felst í meginatriðum í eiginleikum og upplifun...