Hyundai Motors hefur lagt niður þróunardeild sína fyrir brunavélar og einbeitir sér í staðinn að því að þróa rafdrifnar aflrásir fyrir bíla sína. Deildin var staðsett í höfuðstöðvum rannsókna og þróunar fyrirtækisins í Namyang, Suður-Kóreu.
Hyundai Motors þróaði sína fyrstu vél árið 1983.
Framleiðandinn hefur hægt og rólega verið að færast í átt að þróun rafbíla. Áður féll þróun rafbíla hjá fyrirtækinu undir eininguna sem hannar drifrásir. Hins vegar, með nýlegum breytingum, stofnaði Hyundai rafvæðingarþróunarteymi til að beina kröftum fyrirtækisins að rafbílum.
Hyundai Motors var með sína eigin rafhlöðuhönnun og rafhlöðuþróunarteymi. Fyrirtækið staðfesti að teymi myndu færa sig yfir í nýju deildina, samkvæmt frétt í dagblaðinu Korea Economic Daily.Óljóst er hversu mörg önnur svið Hyundai Motor munu fara undir nýju deildina.
Hyundai, ásamt dótturfyrirtæki sínu, Kia Motors, vonast til að selja 1,7 milljónir rafbíla árið 2026. Þetta er djörf stefna en nauðsynleg ráðstöfun kóresku bílaframleiðendanna. Hins vegar er töluverð vinna fyrir höndum.
Aðrar umfjallanir
Lexus, sem frumsýndi ROV torfærubílahugmynd sína í lok síðasta árs, sýnir hana núna á Tokyo Auto Show í Tókýó.
Nú kynnir GM komu Silverado með rafmagnsmótorum. Sá á að komast tæpa 650 kílómetra skv. WLTP staðlinum.
Það getur verið sniðugt, áður en básúnað er að maður hafi fundið Batmobile úti á víðavangi, að kanna umhverfi fundarstaðarins aðeins. Já, bara að ganga úr skugga um hvort í næsta nágrenni sé skemmtigarður eða tökustaður kvikmyndar, svo dæmi sé tekið.
Ford Performance hefur staðfest að Raptor verði ekki rafvæddur, þar sem yfirverkfræðingur útskýrir ástæður þess á eins beinan hátt og mögulegt er...