Polestar innleiðir Vivaldi vafrann í Polestar 2
GAUTABORG, Svíþjóð – 22. desember 2021. Polestar, hreinræktaður, hágæða rafbílaframleiðandi, hefur nú innleitt Vivaldi vafra í Polestar 2. Sem svar við óskum Polestar eigenda, þá er bíllinn nú búinn fullkomnum vafra sem gerir notendum kleift að vafra um vefinn eins og þeir myndu gera í öðrum snjalltækjum. Þetta er fyrsti vafrinn sem er fáanlegur fyrir Android Automotive OS.
„Nýr heimur opnast með aðgengi að efni alnetsins í Polestar 2 – jafnvel aðgengi að sumum af uppáhalds streymisveitunum þínum.“
Smáforritið, sem er þróað fyrir Polestar 2 af Vivaldi teyminu í Noregi, býður upp á víðtæka vafravirkni á 11 tommu miðjuskjánum í bílnum með Android Automotive OS og virkar á svipaðan hátt og það myndi gera í snjalltæki* - með flipavafri, streymisvirkni, netverslun og hámarks öryggi.
Vivaldi vafrinn er með sveigjanlega uppbyggingu, innbyggða auglýsingavörn, persónuverndarvænt þýðingarverkfæri, nótuvirkni, rakningarvörn og dulkóðaða samstillingu.
Jón Stephenson von Tetzchner, forstjóri Vivaldi, bætir við: „Við erum virkilega stolt af því að kynna vafrann okkar í fyrsta skipti í bíl, og sérstaklega með bílaframleiðanda eins og Polestar. Markmið okkar um tækni og sjálfbærni eru samrýmanleg. Við metum gagnsæi, persónuvernd og ábyrga nýsköpun – og einnig má nefna þá staðreynd að við erum með netþjóna okkar á Íslandi, einum nýjasta markaði Polestar. Eins og Polestar erum við vörumerki áskoranda og við beitum skandinavískri nálgun á hönnun, sem byggir á trausti og hlustun á notendur.“
Í kjölfar nýlegrar hugbúnaðaruppfærslu fyrir Polestar 2 í lok nóvember eru tæknilegir eiginleikar Polestar nú einnig byggðir fyrir afþreyingu.
Þetta styður enn frekar við stöðu Polestar vegna fyrirhugaðrar sameiningar fyrirtækisins við Gores Guggenheim, Inc. (Nasdaq: GGPI, GGPIW og GGPIU), sem gert er ráð fyrir að verði lokið á fyrri hluta árs 2022.
Aðrar umfjallanir
Henrik Fisker notaði Mobile World Congress í Barcelona til að kynna bílinn sinn, Ocean, fyrir Evrópu. Verð eru tilbúin og framleiðsla hefst í nóvember....
Æ fleiri framleiðendur stærri bíla hafa verið að prófa sig áfram á sviði rafbíla og þar á meðal framleiðendur pallbíla í Bandaríkjunum...
Hinn 24 ára gamli Hollendingur, Max Verstappen, vann heimsmeistaratitilinn í Formúlu 1 í Abu Dhabu.
Í ágúst 1996 keypti rapparinn 2Pac, eða Tupac Shakur, afskaplega fínan Hummer H1. Mánuði síðar, föstudaginn 13. september, var Tupac allur. Hann lést af völdum skotsára sem hann hlaut þegar skotið var á bíl sem rapparinn var í, á leið frá hnefaleikaviðureign Tysons og Sheldons.