Svarið sem kemur strax upp í hugann er: „Já. Það er alltaf lummó og hreint út sagt kjánalegt.“
Þegar ég kannaði málið með dálitlu ferðalagi um veraldarvefinn komst ég að því, mér til mikillar furðu, að bílajólaskreytingar geta verið fyndnar!
Þetta kemur beint úr Amazon.com-frumskóginum. Hlekkur er hér fyrir neðan.
Þeir eru til sem reyna að jólaskreyta bílana sína á sama hátt og þeir myndu skreyta kofa, eldhúsglugga eða jólatré. Það náttúrulega gengur ekki nema bíllinn eigi ekki að fara neitt.
Maður fer nú ekki langt á svona skreyttum bíl í snjó eða slabbi. Fyrir utan að maður myndi aldrei láta sjá sig á svona...
Ef bíllinn er ekki í notkun er eflaust frekar lítið mál að skreyta með snúrum, gaddavír og öðru skemmtilegu sem nágrannarnir vonandi hrasa ekki um.
Þessi gæti laðað að sér „grænu karlana“ utan úr geimi.
Öðru máli gegnir um bíla sem eru í notkun og það jafnvel í snjó, slabbi og slubbi (hvað sem það nú er). Eitt og annað hefur fólk búið til sjálft og eru hér nokkur sýnishorn en svo má reyndar kaupa mjög fyndið jólatengt bíladót í vefsjoppunni Amazon.
Kannski er þetta ekki endilega jólaskraut en mjög flott „hjólaskraut“ í smá stund alla vega. Eða bara á mynd.
Úps! Vitlaus mynd. Þetta er skraut fyrir einhverja aðra hátíð.
Þetta lofar góðu!
Svo er þetta myndband alveg ágætt og frekar vel gert þannig að ég læt það fylgja hér:
Aðrar umfjallanir
PARIS - Citroen sýndi í dag, 15. júní, myndir af nýjum C4, sem kemur í rafmagnsútgáfu og mun koma í stað C4 Cactus...
Það er greinilega verið að ljúka prófunum á nýja Volkswagen Golf R sem er í lokaáfanga þróunar, á undan væntanlegri frumsýningu...
Henry Ford var hugsi eftir að hafa skoðað kjötvinnslu nokkra í Chicago í llinois, þar sem kjöt var unnið og því svo pakkað. Hann var ekki hugsi vegna gangs lífs og dauða, og hvorki var hann grænmetisæta né vegan.
LONDON - Framleiðsla fyrsta bíls Ineos, Grenadier jeppans, verður seinkað til júlí 2022 til að tryggja að ströngum prófunarmarkmiðum sé náð eftir...