Nýr Citroen C4 kemur sem rafbíll og með yfirbragði sportjeppa
Citroen hefur gefið nýja C4, sem mun einnig koma sem rafbíll - hallandi þaklínu að aftan og aðeins hærri stöðu.
PARIS - Citroen sýndi núna þann 15. júní, myndir af nýjum C4, sem kemur í rafmagnsútgáfu og mun koma í stað C4 Cactus í framboði vörumerkisins síðar á þessu ári.
Citroen hefur gefið nýjum C4 hallandi þaklínu að aftan, aðeins hærri stöðu og „sportjeppa einkenni“ eins og svarta hjólboga og klæðningu á neðri hluta yfirbyggingarinnar og innfelldar hlífar í stuðara.
Nýi C4 er byggður á útvíkkaðri útgáfu af CMP grunni PSA Group sem fram til þessa hefur aðeins verið notaður fyrir litla bíla og sportjeppa eins og Peugeot 208, Opel / Vauxhall Corsa og DS 3 Crossback. Á grunninum er hægt að rúma bensín, dísel eða rafknúnar drifrásir.
Innréttingin endurspeglar núverandi Citroen hönnun, með láréttan „fljótandi“ miðlægan snertiskjá, minna mælaborði og endurvarpi upplýsinga í sjónlínu ökumanns.
Citroen gaf ekki út verð bílsins eða frumsýningardaginn, sem verður á seinni hluta þessa árs. Citroen lét vita að þann 30. júní mun fyrirtækið vera með viðburð á netinu þar sem gert er ráð fyrir að stjórnendur muni veita nánari upplýsingar um C4.
C4 er fimmti rafdrifni Citroen sem tilkynnt er um á þessu ári, í kjölfar C5 Aircross sportjeppa með tengitvinnbúnaði, Ami fjórhjólsins, og e-Jumpy og e-Spacetourer sendibíla.
Innanrými nýja C4 endurspeglar núverandi Citroen hönnun, með láréttan „fljótandi“ miðlægan snertiskjá, minna mælaborði og endurvarpi upplýsinga í sjónlínu ökumanns
Nýi Citroen C4 verður settur á markað á seinni hluta þessa árs.
Aðrar umfjallanir
Við sögðum nýlega frá því hér á vefnum að Nissan mun ekki koma með nýja Navara til Evrópu vegna lítillar sölu á pallbílum á þeim markaði...
Þessi nýja auglýsing Ford Performance á 2022 Ford Puma WRC rallýbílnum er mjög spes; en það er eitthvað við hana. Eða réttara sagt þá er þessi bíll alveg voðalega spennandi. Hvað segið þið?
BMW i Vision Circular hugmyndabíllinn er „forsýning á sjálfbærum bíl framtíðarinnar,“ sagði forstjórinn Oliver Zipse...
Páfinn trúir ekki á Lamborghini samkvæmt heimildum né tilbiður neina bíla. Hins vegar virðast eins konar „trúarsöfnuðir“ verða til í kringum vissar tegundir bíla!