Að sjá þessar mögnuðu rallýkonur! Hér eru á ferðinni; já á mikilli ferð, þær Michèle Mouton og Fabrizia Pons. Hin franska Michèle Mouton er án efa magnaðasta kvenpersóna sem rallið getur státað af. Já, og sennilega akstursíþróttaheimurinn svona yfirleitt.
Hún keppti í ralli frá 1974 til 1986 og í meðfylgjandi myndbandi keppti hún, eins og sjá má, fyrir Audi. Audi S1 Quattro var bíllinn og aðstoðarökumaðurinn hin ítalska Pons sem áður var nefnd.
Það er vonlaust að fjalla á einhverju hundavaði um hinn stórkostlega feril Michèle Mouton, að Pons ólastaðri sem og öðrum aðstoðarökumönnum Mouton, en það er vel við hæfi að birta hér þetta ágæta og stutta myndband í dag. Af hverju?
Það þarf auðvitað aldrei neitt sérstakt tilefni til að fjalla um magnað fólk í heimi akstursíþróttanna, en hins vegar er það nú svo að Michèle Mouton hefur verið undirritaðri ofarlega í huga síðustu dagana:
Í fyrradag, á föstudagi, þegar Jean Todt lét af störfum sem forseti Alþjóðaakstursíþróttasambandsins (FIA) eftir tólf ára starf, lét Michèle Mouton einnig af störfum en hún hefur síðastliðin tólf ár gegnt hlutverki forseta FIA Women in Motorsport, þ.e. ráðs eða nefndar kvenna í akstursíþróttum.
Aðrar umfjallanir
Síðustu vikurnar hafa margir spurt sig að því hvort Formúla 1 sé að þróast út í einhverja vitleysu? Síðasta sólarhringinn hefur sú spurning ítrekað komið upp hvort barátta þeirra Hamiltons og Verstappens um titilinn sé endanlega farin úr böndunum. Er það svo?
Samkvæmt frétt frá Reuters verður framleiðsla á rafmótorum aukinn til muna í stærstu vélaverksmiðju Stellantis, því fyrirtækið sagði á miðvikudag að það muni...
Stundum gerist það að gamlar fréttir fara á flug og það er vissulega í lagi ef þær eru réttar og allt í gildi sem fram í þeim kemur. Þegar þessi frétt var í flugtaki vinsælda í gærdag ákvað blaðamaður að uppfæra fréttina og hér er hún aftur komin, frétt frá september 2020 um áhrif útgöngubanns vegna heimsfaraldurs, á loftmengun: Dró úr loftmengun eða ekki?
Þetta nýbyrjaða ár virðist fara hægt af stað með fréttum af nýjungum á bílamarkaði, en þó hafa nú borist fréttir af nýjum „smájeppa“ frá Smart sem er væntanlegur árið 2022...