Síðustu vikurnar hafa margir spurt sig að því hvort Formúla 1 sé að þróast út í einhverja vitleysu? Síðasta sólarhringinn hefur sú spurning ítrekað komið upp hvort barátta þeirra Hamiltons og Verstappens um titilinn sé endanlega farin úr böndunum. Er það svo?
Ef því væri hægt að svara hér þá væri nú eitthvað verulega bogið við þennan vef og þá einkum blaðamann - en ætlunin er alls ekki að svara spurningunum heldur einfaldlega að miðla efninu.
Spurningarnar eiga vissulega rétt á sér því það sem til dæmis gerðist í keppninni í Sádí-Arabíu í gærkvöldi er eitthvað sem áhorfendur eiga ekki að venjast.
Eitt og annað gekk á í gærkvöldi í Jeddah. Hamilton taldi næsta víst að aðalkeppinauturinn, Max Verstappen, gengi sjálfur „ekki á öllum“ eða væri beinlínis klikkaður. Myndir: Mercedes
Keppnin þar sem allt klikkaði?
Eins og minnst var á í greinarkorni hér í gær þá fór æði margt úrskeiðis og var ræst þrisvar í keppninni; tvær endurræsingar þegar einungis 16 hringir af 50 höfðu verið eknir. Já, og fjórir keppendur úr leik.
Mick Schumacher ók út af á 10 hring og endaði á vegg. Þetta var á sama stað og Leclerk fór út af á föstudagskvöldið nema hvað bíll Schumachers skemmdist töluvert en hvorugur mannanna slasaðist.
Rétt eftir fyrri endurræsinguna ók Perez út af eftir samstuð hans og Leclerk. Þá ók Marzepin aftan á bíl Russels í algjöru kraðaki sem skapast hafði á brautinni.
Framúrakstur, samningaviðræður og refsingar
Þegar undirrituð var að finna til myndbrot til að birta hér í tengslum við þau fjölmörgu atvik sem upp komu í gær varð á „internet-vegi“ mínum myndband þar sem farið er yfir umrædd atvik, auk þess sem búið er að klippa saman viðtöl við ökumenn og liðsstjóra sem tekin voru að keppni lokinni í gær. Er þetta svo vel unnið af REVV Motorsport að ég leyfi því að fylgja hér.
Aðrar umfjallanir
Lamborghini nýja torfærubílinn sinn – Huracan Sterrato - sérstaklega fyrir torfærur...
Í gærkvöldi birti Samgöngusafnið í Stóragerði færslu þess efnis að Ford Fiesta XR2i væri kominn á safnið góða og þar með orðinn hluti af því fíneríi sem tilheyrir GTI/Turbó hluta safnsins. Lítum nánar á þennan rúmlega þrítuga 900 kílóa eðalbíl.
Nú er eldgos og því fullkomlega við hæfi að fjalla um öskubakka - í bílum...