Nei, hættu nú alveg! Það er hægt að slá met í ýmsu og ekki eru þau nú öll gáfuleg, heimsmetin. En það er aukaatriði. Í þessu tilviki er þetta fyrst og fremst drepfyndið.
Þetta er ekkert grín sko, þó að einhverjum í Hafnarfirðinum þyki það broslegt! Skjáskot/YouTube
Hvaða „lágfari“ getur hoppað hæst?
Undirrituð skrifaði grein í haust, sem lesa má hér um hið sérstæða fyrirbæri „lowrider“ Kom þar upp íslenska nýyrðið lágfari og það þykir mér býsna flott. Fyrir stuttu komu nokkrir lágfarar saman í Las Vegas og lyftu sér upp, eins og gert er í Vegas.
Markmiðið var að slá heimsmet í hoppiskoppi og voru það tveir Chevrolet Caprice sem gerðu betur en aðrir. Heimsmetið er, samkvæmt því sem kemur fram í meðfylgjandi myndbandi, 3,5 metrar.
Áhorfendur á staðnum bókstaflega dýrka að sjá þessa bíla hoppa og ég veit ekki af hverju. Hef bara ekki hugmynd! Hitt veit ég þó að þarna eru menn með sverar gullkeðjur um hálsinn og alls konar týpur eru á ferli sem ekki sjást í dagsbirtu. Enda er þetta í myrkri.
Þegar ég sé myndbönd af svonalöguðu [hoppandi lágförum] kemur iðulega upp í hugann gott grín úr teiknimyndinni Cars (en heimsmetið hefur auðvitað ekkert með teiknimyndina að gera):
Og svo með smá lími og kennaratyggjói gæti útkoman orðið eitthvað á þessa leið (og sjáið nú líkindin!):
En þetta var nú útúrdúr.
Aðrar umfjallanir
Steve Jobs (1955-2011) skipti um bíl á 6 mánaða fresti, lagði í stæði fyrir hreyfihamlaða og vildi ekki hafa númeraplötu á bílnum sínum. Af hverju? Jú, allt á þetta sér nú skýringu. Lítum nánar á þessar staðhæfingar!
Bílasýningar eru áhugaverður vettvangur fyrir bílaáhugamenn, og þar er oft hægt að sjá skemmtilega bíla, stundum bara hugmyndir...
Volkswagen, Skoda og Honda eru meðal þeirra vörumerkja sem nota eða prófa sveimtækni til að veita enn meiri ökumannsaðstoð...
Ótrúlegt atvik náðist á myndband: Skýstrókur tók pallbíl sem var á ferð en ökumaðurinn lifði af og er einn af fáum til frásagnar um slíka upplifun!