Það var eitthvað torkennilegt sem blasti við lögreglumanninum í Queensland í Ástralíu þegar hann stöðvaði ökumann nýverið. Bíllinn sem maðurinn ók var af gerðinni Suzuki Jimny frá 1990 og hafði bílnum verið breytt í pallbíl. En það vantaði eitthvað…
Það er alls ekki alltaf refsivert að vera á illa breyttum bíl. Þó stundum finnist manni að svo mætti alveg vera.
En þennan dag sem lögreglumaður nokkur í Queensland fylgdist með umferðinni þótti honum eitthvað undarlegt við miður fallegt ökutækið sem fangaði athygli hans.
Innsæi löggunnar reyndist rétt
Jú, mikið rétt: Bílstjórinn sat ekki í sætinu. Hann sat á dekki. Enda var ekkert sæti í bílnum. Það þurfti engan innanbílsarkitekt til að sjá að það vantaði nú eitthvað fleira í bílgarminn.
Það er ekkert að þessu dekki, er það nokkuð? Bara á kolröngum stað og það sem ætti að vera þarna er einhvers staðar annars staðar. Skjáskot/YouTube
Lögreglan tók alla vitleysuna upp, enda bera laganna verðir á þeim slóðum á sér litla myndavél eins og víðast hvar. Upptakan var birt á Facebooksíðu lögreglunnar, sumum til skemmtunar og öðrum til aðvörunar.
Bíldruslan reyndist algjörlega strípuð að innan og það að sætin vantaði var nú bara eitt af mörgu. Auðvitað bólaði ekki á neinum sætisbeltum en það fyrsta sem lögreglumaðurinn ætlaði að sekta ökumanninn fyrir var einmitt að vera ekki í belti. Þá bættist við að sitja ekki í sæti við akstur. Og svo auðvitað það að ekki væru sæti í bílnum svona yfirleitt. Já, það var af nógu að taka.
Og skammastu þín svo
Gírstöngin var eitthvað asnaleg og vantaði á hana hnúðinn. Það fór voðalega í taugarnar á lögreglumanninum sem virtist finna bílnum allt til foráttu, ekki síður en ökumanninum sjálfum.
„Það er ekkert sæti… Þú situr á dekki. Já, þú situr á dekki. Og svo er ekkert sætisbelti. Þú getur bara ekki keyrt án sætis. Og það er enginn gírstangarhnúður. Ég meina, hvað ef þú þarft skyndilega að bremsa?“
Já, vonandi eru ekki öll samtölin (þetta var nú meira í ætt við eintal en jæja…) sem hann á við þá sem hann stoppar svona agalega kjánaleg.
Hér er myndbandið og munið, lesendur góðir, að spenna beltin og sitja í þar til gerðu sæti þegar ekið er. Ekki á dekki.
Aðrar umfjallanir
Eftir meira en átta ára framleiðslu hætti BMW loksins i3 í júní. Síðustu bílarnir voru þó aðeins afhentir í vikunni...
Eflaust hafa margir orðið spenntir þegar fréttist að hinn magnaði WRC rallýkappi, Sébastien Loeb, hafi verið við prófanir á Ford Puma M-sport Hybrid 2022 á Spáni og í Monte Carlo. Vona margir að hann ætli að keppa í WRC á næsta ári.
Suzuki ver að kynna nýjan bíl í sínu framboði, Suzuki Swace sem er þeirra útgáfa af sams konar bíl, Toyota Corolla. Þetta er annar bíllinn frá Suzuki sem byggir á...
Undanfarinn áratug höfðu umhverfissinar séð svart af vanþóknun vegna hins bensínþyrsta risavaxna Hummer jeppa. Núna lítur hins vegar annar...