Ef maður á lítinn bílskúr er gott að eiga enn minni bíl. En maðurinn í meðfylgjandi myndbandi er búinn að reikna nákvæmlega út hvernig hann kemur bílnum inn í bílskúr sem er svo lítill að hann passar næstum í úlpuvasann. Já, og svo þarf maðurinn auðvitað að komast út úr bílnum.
En ef maður á bíl sem er 149 sentímetra breiður og bílskúr sem er 155 sentímetra breiður, liggur þá ekki beinast við að leggja bara úti við götu eða í næsta bílastæði? Nei ekki í þessu tilviki.
Eins og arfaslök myndgæðin bera með sér, er myndbandið eldgamalt. En gott er það. Gamalt og gott. Bílstjórinn er Belgi en sem betur fer ekki belgmikill. Í athugasemdum við myndbandið án texta kemur fram að sá gamli hafi verið 87 ára þarna en látist á nítugasta og þriðja aldursári. Hann ók víst þessari Fiat Pöndu alveg þangað til.
Aðrar umfjallanir
Rebelle Rally er keppni þar sem saman fléttast ást á akstri og svakaleg áskorun í nákvæmnisakstri. Rallið, sem eingöngu er ætlað konum, tekur átta daga og eknir eru um 2500 kílómetrar í eyðimörk.
Ódýri rafbíllinn frá Volkswagen, sem sýndur var sem ID Life crossover-hugmyndabíll á bílasýningunni í München í september, hefur fallið...
Piltur nokkur gerði sér lítið fyrir og skrapp á fjölskyldubílnum í skólann. Systkini hans fengu far. Verst að guttinn er bara 10 ára gamall og þó að hann hafi ekki klesst á eitt eða neitt þá er fullorðna fólkið alveg brjálað núna.
Hyundai Casper: Þeir gerast varla sætari, segja þeir hjá BilNorge.