- Hyundai hefur kynnt til leiks nýjan smábíl sem væntanlegur er í byrjun árs 2022. Þeir gerast varla sætari, segja þeir hjá BilNorge.
- Of stór til að vera japanskur „kei bíll“ og því miður of lítill til að komast á Evrópumarkað.
Borgarbílum – eða smábílum sem fyrst og fremst eru ætlaðir í innanbæjarakstur – fjölgar. Nýlega kynnti Hyundai einn nýjan slíkan. Sá virðist aðeins ætlaður á heimamarkað í Suður-Kóreu og hugsanlega einnig á Indlandi, en hann er of lítill til að koma til Evrópu.
Jon Winding-Sørensen hjá BilNorge skrifar um bílinn og segir: „Fyrst fannst mér svolítið skrítið að nefna bíl eftir norskri tennisstjörnu sem er nýbyrjuð að byggja upp vörumerki sitt. En í myndbandi um bílinn var útskýrt að Casper væri bara eins og hjólabretti sem í raun líti nokkuð vel út.
En útkoman er bíll sem þú vilt eiga og njóta.
Horfðu bara á framendann - hann hefur svip sem er blanda af undrun og gleði yfir því að sjá þig. Góð útkoma“.
Byggður á sama grunni og Hyundai i10
Sagt er að Casper sé smíðaður á sama K1 grunni og Hyundai i10, en hann er minni. Tæplega 360 cm á lengd og 160 cm á breidd. Þannig að sem slíkur er hann aðeins of stórt til að verða verða talinn „Kei-bíll“ í Japan.
Ekki 4x4
„Það eru engar brellur hér, ekki 4x4 til dæmis. Bíllinn verður með sömu þriggja strokka bensínvél og i10, annaðhvort 76 hestöfl eða 99 með túrbó.
Aðrar umfjallanir
Það er engum blöðum um það að fletta að nýliðið ár var vægast sagt sérstakt. María Jóna Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins, fór ásamt blaðamanni Bílabloggs...
Það gæti farið svo að við gætum séð rafmagnsútgáfu af hinum klassíska Mini, breskum borgarbíl sem var framleiddur af BMC og arftaka hans frá 1959 til 2000.
Vörubílstjórum fækkar um 109 á degi hverjum í Bandaríkjunum. Ástæðan er sú að þeir falla á lyfjaprófi og eru því bókstaflega teknir úr umferð.
Hann þótti ægilega ljótur á sínum tíma og hann heitir eftir skorkvikindi. Stout Scarab var fyrsti „mini-van“ sögunnar, sem og fyrsti bíllinn með loftpúðafjöðrun og yfirbyggingu úr trefjaplasti. Þó að hann hafi verið algjör snilldarsmíði var honum í raun stax hafnað en núna þykir hann listaverk.