Það er nú hvorki árstíminn né veðrið til að hugsa um útilegu. En það er samt alveg í lagi að skoða möguleikana sem t.d. Teslueigendur geta nýtt sér með stillingu sem er hugsuð fyrir þá sem ætla að gista í bílnum.
Í gærkvöldi birti Tesla örstutt myndband sem fékk strax mikla athygli. Jákvæða athygli. Ég hugsaði strax með mér: „Það er nú ekki oft sem myndband er með 5.500 „like“ og ekkert „dislike“. Það er virkilega góð tilbreyting!“ En svo komst ég að því að búið væri að breyta „dislike-inu“ á YouTube. En það væri óskandi að fólk væri hreinlega orðið jákvæðara! Þetta er kannski í áttina - að fela „dislike-ið“.
Skjáskot/YouTube/Tesla
Kósý Teslustund
„Camp Mode“ er stilling sem var kannski til áður í Teslum en hvernig sem það nú er (hugbúnaðaruppfærsla eða annað) þá er myndbandið ljómandi fínt og endilega kíkið á það gott fólk, áður en farið er út til að skafa af bílnum!
Aðrar umfjallanir
Haustið 1984 var víst skrautlegt á Akureyri vegna músafaraldurs. Svo sagði alla vega í Dagblaðinu Vísi í desember það ár. Þar birtist bráðskemmtileg saga af Volvoeiganda nokkrum sem ók eins og „bandítt“ vegna músar í bílnum.
Bifvélavirkjar og allir aðrir sem hafa gert við bíla verða oft gáttaðir á því hvernig bíllinn sem er verið að gera við er hannaður með tilliti til...
Það var á þessum degi, 8. nóvember, á því herrans ári 1956, sem mesti skandall bandarísks bílaiðnaðar fékk nafn. Þá var hann ekki tengdur skandal en það varð hann nú skömmu síðar, blessaður. Umfjöllunarefnið er Ford Edsel.
Nýr Volkswagen Golf R í áttundu kynslóð þessa bíls hefur verið kynntur opinberlega. Hann trjónir á toppnum í framboði vörumerkisins - og mun fylgja nýkomnum...