Rafpallbíllinn Rivian R1T hefur vakið mikla lukku vestanhafs frá því fyrstu bílarnir voru afhentir í haust. Framleiðandinn ætlar sér stóra hluti í framtíðinni og því er unnið að stækkun aðalverksmiðjunnar.
Rivian R1T settur saman í Normal. Mynd/Skjáskot/YouTube
Normal verksmiðjan
Það er ekkert undarlegt við það því verksmiðjan er staðsett í bænum Normal í Illinois í Bandaríkjunum. Sniðugt nafn það! Normal.
Laugardalsvöllur er um 7,140 m2 að stærð. Verksmiðjan í Normal er því eins og 34 Laugardalsvellir að flatarmáli og eftir stækkunina mætti rúma þar 42 Laugardalsvelli. Þetta er sem sagt mjög stórt og verður enn stærra!
Þar sem ekki er hlaupið að því að heimsækja svona verksmiðju og því er algjörlega frábært að geta litið inn án þess að þurfa að standa upp úr sófanum. Normalverksmiðjan gjörið svo vel:
Aðrar umfjallanir
Árið 1957 fengu embættismenn í Tulsa í Oklahoma mjög sérstaka hugmynd. Þetta var á fimmtíu ára afmæli Oklahoma og var hugmyndin sú að grafa niður splunkunýjan bíl, Plymouth Belvedere, og varðveita hann neðanjarðar í hálfa öld. Árið 2007 skyldi hann koma upp á yfirborðið - eins og nýr!
Samkvæmt frétt frá Associated Press mun sænski bílaframleiðandinn Volvo Cars ætla að byggja nýja evrópska verksmiðju í austurhluta Slóvakíu...
Toyota hefur staðfest að það muni smíða nýjan smábíl sinn sem verður svipaður Aygo X hugmyndabílnum í verksmiðju sinni í Kolin í Tékklandi...