„Einhver sem vill skella sér aftur í? Eða upp á þak?“ spurði bílakarlinn Bandaríkjaforseti svellkaldur í nýpressuðum jakkafötunum nokkrum sekúndum eftir að hann prófaði „launch control-ið“ á nýjum rafdrifnum Hummer í síðustu viku.
„Launch control“ hefur lengi verið nefnt spyrnustýring af mætum bílablaðamönnum og þykir mér það býsna gott orð. Fyrst minnst er á góð orð þá hefur undirrituð aðeins fjallað um miður góð orð og síst spakleg sem fyrrnefndur forseti lét falla um framleiðslu rafbíla í heimsókn í verksmiðjur General Motors í síðustu viku.
Forsetabíllinn eyðir 200 lítrum á hundraðið
Nema hvað! Það er frekar „spaugilegt“ að hugsa til þess að ökutækið sem kom honum á staðinn, Cadillac One, mallaði í gangi á meðan umhverfismálunum var gefinn gaumur og rafbíllinn Hummer EV prófaður.
Hér sitja forsetahjónin inni í Cadillac One og eldur og brennisteinn af himnum ofan myndi ekki svo mikið sem narta í þennan bíl. Hann er í raun skotbyrgi á hjólum. Mynd/Hvíta húsið
Forsetabíllinn er í raun og veru skotbyrgi á hjólum sem vigtar tæp 9 tonn og til að koma bákninu áfram er notast við sex strokka túrbó dísil vél. Sökum þyngdar ökutækisins er því talið nokkuð víst að eyðslan sé ógurleg, eða allt að 2 lítrar á kílómetra! Það gerir 200 lítra eldsneytiseyðslu á hverja hundrað kílómetra.
The Beast mengar eins og skepna
Bíllinn hefur verið kallaður „The Beast“ eða „Skepnan“ vegna stærðar hans. Og Skepnan er aldrei ein á ferð því eins bíll (hin Skepnan) er iðulega með í för til öryggis. Því má segja „sinnum tveir“ um allar tölur sem hér koma fram (ath. að í myndbandinu hér fyrir neðan er „hin Skepnan“ ekki á eftir forsetabílnum heldur sambærilegur bíll með Chevrolet merki).
Upplýsingar um hvert CO2 gildið er í útblæstri Skepnunnar liggja ekki á lausu, enda sérsmíðað fyrirbæri með ýmis gildi sem framleiðandinn vill örugglega ekki hafa hátt um. Á síðunni sem vísað er í hér kemur fram að miðað við stærð, vél og það sem vitað er um Skepnuna, megi gera ráð fyrir að útblástursgildið sé um 2.5 kg af CO2 á kílómetra.
Og hver framleiðir Cadillac? Rétt! Enginn annar en GM (General Motors Company).
Nóg er að horfa á fyrstu 1:30 í meðfylgjandi myndbandi til að sjá og heyra það sem getur varla kallast annað en gríðarlegt misræmi á milli þess sem annars vegar er boðað og hins vegar gjörðanna.
Aðrar umfjallanir
Sebastian Vettel virðist vera maður sem kemur auga á hið spaugilega í lífinu og það sama má segja um Mick Schumacher. Það er nauðsynlegt að fíflast dálítið endrum og sinnum og hér er slegið á létta strengi í stuttri samantekt um þá tvo.
Mercedes-AMG afhjúpaði C 63, nýja toppgerð C-Class bílaframleiðandans, með tvinndrifrás sem kemur í stað hefðbundins V-8 fólksbíls...
Volvo Cars hefur kynnt ýmsar uppfærslur fyrir allar rafknúnar XC40 Recharge og C40 Recharge gerðir sínar...