Nýr 300 hestafla Peugeot 3008 SUV PHEV tengiltvinnjeppi. Væntanlegur í febrúar 2020.
Langdrægur 300 hestafla tengiltvinnjeppi frá Peugeot
Brimborg hefur sett í forsölu nýjan Peugeot 3008 SUV PHEV sparneytinn tengiltvinnjeppa með val um tvær aflrásir. Annars vegar 225 hestöfl með framdrifi og hins vegar 300 hestöfl með fjórhjóladrifi og í báðum tilvikum með 8 gíra sjálfskiptingu, 5 ára heildarábyrgð og 8 ára ábyrgð á rafhlöðu.
Peugeot 3008 sló í gegn á Íslandi og nú kemur hann í tengiltvinnútgáfu með veghæð upp á 22 cm. og drægni á 100% hreinu rafmagni allt að 59 km. og snögga rafhleðslu þar sem hægt er að fullhlaða á 1:45 klst.
Eldsneytiseyðsla í blönduðum akstri er aðeins 1,6 til 2,2 l/100 km. og CO2 losun aðeins frá 33 til 49 gr. per km. skv. WLTP mælingu.
Peugeot 3008 er margverðlaunaður og hefur fengið sérstakt lof fyrir einstaka hönnnun að utan sem innan þar sem nútímaleg i-Cockpit innrétting er í lykilhlutverki með nýjustu kynslóð af tækni þar sem allar upplýsingar eru í sjónlínu ökumanns.
Peugeot 3008 SUV PHEV kostar frá 5.230.000 kr. og er nú þegar fáanlegur í forsölu í vefsýningarsal Brimborgar. Nánari upplýsingar er á finna á vef Peugeot á Íslandi.
Smelltu hér til að kynna þér Peugeot 3008 PHEV!
Aðrar umfjallanir
Framleiðsla á FH, FM og FMX Electric mun hefjast í haust í kolefnishlutlausri verksmiðju Volvo í Tuve í Svíþjóð...
Þessa dagana streyma inn fréttir af frumsýningum á nýjum bílum á bílasýningunni í Frankfurt.BMW hefur forsýnt hönnun næstu 4 seríu Coupé með Concept 4 sem kynntur var á bílasýningunni
MG í Kína hefur verðlagt nýja Marvel R rafknúna sportjeppann, keppinaut við Volkswagen ID4 og...
Ástæðurnar fyrir því að hætt hefur verið við er áhugaleysi bílaframleiðenda auk óvissu aðstæðna vegna stjórnunar á kórónaveirunnar...