Ó Ameríka! Það sem ekki er til í Ameríkunni stóru…
Bílakarlinn og kistusmiðurinn Danny Mandez rís upp...
Komdu og skoðaðu í kistuna mína…
...því þar er kannski einn kaldur!
Þessi hefur „lík“lega slegið í gegn í teitinu þar sem menn gátu fengið sér einn eða tvo kalda úr kistunni.
Nú haldið þið kannski, lesendur góðir, að ég sé að rembast eins og rjúpan við staurinn, við að vera fyndin. En það er alls ekki svo. Þetta er dauðans alvara!
Samt er þetta nú alveg drepfyndið, ef maður lítur þannig á það.
Eigin bílakirkjugarður kveikti hugmyndina
Kistusmiðurinn Danny Mendez er mikill bílaáhugamaður og er raunar „lágfari“ eða „lowrider“ sjálfur.Hann fékk hugmyndina um smíði á bílalíkkistum um aldamótin. Þá leit Danny yfir bakgarðinn heima hjá sér, horfði á alla bílana sem hann nennti ekki að gera við og hugsaði: „Þetta er nú bara að verða eins og bílakirkjugarður.“ Þannig var nú það.
Stoltur af hugmynd sinni og handbragði: Danny Mendez frá Kaliforníu.
Á sýningu 2017.
En það gæti verið að fyrirtækið sé ekki í fullu fjöri þó að vefsíðan sé til því síðasta færslan á Facebooksíðu fyrirtækisins er frá 2017. En hvað sem því líður þá kostar bíllinn, ég meina kistan, frá 5.500 dollurum en það eru tæplega 720.000 krónur.
Aðrar umfjallanir
Önnur kynslóð Lexus NX sem kynnt var á síðasta ári hefur verið valin besti lúxussportjeppinn í millistærð hjá Auto Express.
Þetta er Dacia Spring. Þegar opnað verður fyrir pantanir vorið 2021 stefnir í að hann verði ódýrasti nýi rafbíllinn sem hægt er að kaupa í Evrópu...
Myndin hér að ofan er, ótrúlegt en satt, ekki tekin í flokkunarstöð Sorpu. Heldur sýnir hún inn í Ford Focus. Sá sem tók myndina komst ekki inn í bílinn til að taka myndina fyrir ruslinu sem bókstaflega fyllir bílinn. Ruslabíll? Já, eiginlega.
Umferðaröngþveiti skapaðist þegar fjöldi gangandi vegfarenda og ökumanna góndi upp í loft eins og „dáleiddar hænur“. Umferðin var stopp á meðan bandarísk flugsveit lék listir yfir Reykjavíkurflugvelli.