Það er ekkert óeðlilegt við það að tárast yfir því að sjá 34 ára E28 fara í gang eftir tólf ára hlé og vanrækslu. Er það nokkuð? Nei, gott því annars væri maður kannski eitthvað spes.
Hvernig sem það nú er þá las ég grein um mikinn bílakarl sem „fann“ BMW E28 524TD ´87 sem enginn hafði vitjað um í 12 ár. Veit maður nú ekki margt um hvernig slíkur „fundur“ atvikast en hvað um það.
Eftir að hafa þvegið mesta rykið og bjakkið af bílnum, hlóð sá fundvísi geyminn, kom eldsneyti að vélinni enda voru eldsneytislagnirnar í sundur, og bíllinn fór í gang. Og svo skruppu þeir, maðurinn og bíllinn, í bíltúr.
Meira um E28 má til dæmis lesa hér en meðfylgjandi er myndband af þessari hjartnæmu og vel lukkuðu endurlífgun.
Aðrar umfjallanir
Áttatíu ár eru ansi stór áfangi hjá öllum og þegar Jeep vörumerkið náði þessum stóra 80 ára áfanga árið 2021 var augljóst að sérstök útgáfa nú eða tvær væri...
Hinn 86 ára gamli Jose Mujica var forseti Úrúgvæ frá 2010-2015. Munið þið eftir honum? Hann var af mörgum kallaður „nægjusamasti þjóðarleiðtogi í heimi“ en af öðrum „fátækasti forsetinn“. Forsetabíllinn var VW bjalla frá 1987. Forsetinn „þurfti“ ekki annan bíl.
Þær rispuðu lakkið, fóru upp á þak og skemmdu bæði framrúðu og rúðuþurrkur. Þær voru tólf saman, geiturnar sem gerðu aðsúg að lögreglubílnum. Mæja sat í súpunni en hún átti að gæta geitanna.
„The Gooseneck Trailer“, hressileg viðbót við Volkswagen bjölluna en virðist þó ekki hafa náð vinsældum á réttum tíma því ef rétt reynist hafa aðeins tvö eintök varðveist.