Land Rover kynnir nýjan Defender og nýja „limited edition“ útgáfu Discovery
Ný afbrigði Land Rover Defender „Hard Top“
Bæði Discovery og Defender-jepparnir frá Land Rover flokkast örugglega í hugum margra sem vel búnir jeppar, nánast „lúxusjeppar“ – en það er greinilega enn hægt að gera gott betra!
Land Rover Discovery „Metropolitan Edition“
Nýi Land Rover Discovery „Metropolitan Edition“ er verðlagður á heimamarkaði frá 73.250 pundum (um 12,9 milljónir króna) og hann kemur með nokkra sérstæða eiginleika í útliti og góðan búnað.
Bíllinn er byggður á „R-Dynamic HSE“-forskrift fyrirtækisins, en fær nýjar 22 tommu demantsskornar álfelgur, nýjar silfurlitar innfellur í stuðarana, skyggðar rúður og „panorama“-glerþak sem hægt er að opna.
Kaupendur bílanna fá einnig mikið af aukatækni, þar á meðal sprettiskjá í sjónlínu ökumanns með upplýsingum, hita í stýrishjól, þráðlausa snjallsímahleðslu, fjögurra svæða miðstöð/loftkælingu og kælibox í innanrýminu, en títan áherslur eru á mælaborðinu.
Land Rover hefur ekki vanrækt restina af Discovery framboðinu, þar sem „R-Dynamic-gerðin“ er nú staðalbúin með svörtu gljáandi þaki.
Discovery Commercial bíllinn, sem sameinar notkun bílsins í atvinnuskyni hefur líka fengið snögga uppfærslu með nýju R-Dynamic-útliti.
Bíllinn fær sömu sportlegu útlits- og hönnunarbreytingar og staðalgerð jeppans ásamt vali á álfelgum á bilinu 20 til 22 tommur. Að innan eru sportfótstig úr málmi, álklæðningar og skiptiflipar í stýri.
Defender með fleiri valkostum og nýrri tækni
2023 árgerðin af Defender sem væntaleg er árið 2022 kemur með stærri lista yfir valkosti og nýja tækni.
3,0 lítra túrbó-einingin framleiðir 247 hestöfl og 600 Nm tog.
Verðið á nýju vélinni og búnaðarstigið er frá 48.390 pundum (um 8,6 milljónir), þó að kaupendur geti valið um að eyða 55.830 pundum (liðlega 9,8 milljónum króna) og uppfæra í bílinn í SE-útfærslu sem er miðar frekar að því að fytja farþega.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Við þekkjum öll merki bílaframleiðenda. Við sjáum þau á hverjum degi á götunum og í innkeyrslunni okkar...
Porsche mun brátt stækka Taycan línuna með nýju, hagnýtari afbrigði Cross Turismo, núna sem stationbíll. Nýi rafbíllinn verður frumsýndur í næsta mánuði...
Illþefjandi nemandi, slasaðir ökukennarar, hringtorg í „öfuga“ átt og veggir sem eru fyrir: Þetta er á meðal þess sem kemur við sögu í þessari samantekt um það sem getur farið úrskeiðis í ökukennslu, ökuprófi og já…
Það er ekki sérlega langt síðan að Volvo lét nokkra splunkunýja bíla falla niður úr krana sem hífði bílana í nokkra hæð. Sá gjörningur var fyrst og fremst til að kanna áhrif slíks...