Góð aukning í sölu milli ára hjá BL
Afköst í afhendingum framleiðenda smám saman að aukast
Bílasala virðist vera að taka ágætlega við sér, ef horft er til sama tíma á síðasta ári. Þetta má sjá í þeim tölum sem BL var að senda frá sér um stöðuna þar á bæ. Salan hefur aukist og eins eru merki um betri stöðu meðal bílaframleiðenda á tímum covid og vandræðum vegna framboðs á íhlutum, svo sem tölvukubbum og hálfleiðurum.
Nýskráðir á landinu voru 1.217 fólks- og sendibílar í september, 11,5% fleiri en í sama mánuði 2020, og voru 265 af merkjum BL sem er 21,6% aukning milli ára.
Var markaðshlutdeild fyrirtækisins tæp 21,8% í mánuðinum. Frá BL voru 173 nýskráðir einstaklingum og fyrirtækjum og 92 til bílaleiga.
Hyundai er lang söluhæsti bíllinn hjá BL samsteypunni. Hyundai Kona hybrid. Mynd: Pétur R. Pétursson.
Hyundai var jafnframt lang söluhæsta merki fyrirtækisins í september með 142 nýskráningar.
Bíltegundir frá BL voru jafnframt fyrirferðarmestar í innkaupum bílaleiganna í nýliðnum mánuði með 43,6% hlutdeild og á meðal nýskráninga bílaleiganna voru meðal annarra 66 Hyundai og 15 Nissan.
Næst söluhæsta merki BL í september var Nissan með alls 53 bíla og BMW og Renault í þriðja sæti með nítján bíla hvort merki.
Það sem af er árinu hafa 2.334 bílar af merkjum BL verið nýskráðir og nemur aukningin 35,8% milli ára. Hjá BL gætir loks orðið nokkuð aukinna afkasta í afhendingum nýrra bíla frá framleiðendum sem BL hefur umboð fyrir samfara aukinni framleiðslugetu íhlutaframleiðenda sem hamlað hefur mjög starfsemi söluaðila nýrra bíla undanfarin misseri.
Skipting nýskráninga merkja BL eftir tegundum í september samkvæmt uppl. Samgöngustofu.
Aðrar umfjallanir
Opel hefur kynnt rafmagnaða retró útgáfu af hinum þekkilega Opel Manta sem vakti athygli á áttunda áratugnum. Bílinn er tileinkaður 50 ára afmæli..
Um 50 bíla sending af nýjum Volvo XC40 Recharge tengiltvinnjeppum sem var að koma til landsins var öll seld í forsölu áður en bílarnir komu til...
Fimmtíu manns vörðu heilum mánuði hér á landi á vegum Lamborghini í miklu ævintýri: „Esperienza Avventura“. Í gær voru myndir úr þessu ævintýralega ferðalagi fyrst birtar á veraldarvefnum. Myndirnar eru stórkostlegar!
Meðalverð á bensínlítranum í heiminum er 175 krónur. Á Íslandi er lítrinn býsna dýr eins og flestir lesendur vita enda en aðeins sjö lönd í heiminum selja lítrann á hærra verði en hér. Þannig að við eigum næstum þetta vafasama heimsmet. Í Líbýu kostar lítrinn 4 krónur en er þó ekki með lægsta verðið.