Fyrstu myndir af litla Smart-sportjeppanum sýna framleiðslugerð sem er mjög í samræmi við hugmyndabílinn sýndur var á dögunum í München.
Smart verður í Öskju
Það kom fram á dögunum að Smart er í samstarfi við Öskju og verður til sölu þar þegar þar að kemur, en Askja undirritaðai samstarfssamning við Smart á IAA-bílsyningunni í München í september síðastliðnum.
Þessi nýi litli sportjeppi var forsýndur með hugmyndabílnum #1 á bílasýningunni í München. Nafn bílsins vantar enn, en það lítur út fyrir að einkaleyfateikningar á hönnun jeppans hafi verið skráðar hjá hugverkastofnun Evrópu.
Myndirnar sýna örlitla þróun í átt frá hönnun hugmyndabílsins en með breytingum. Þar á meðal má nefna að viðeigandi vélarhlíf er komin á sinn stað, nýtt útlit á grilli og minni hjól sem henta betur til aksturs. Yfirborð og hlutföll ökutækisins eru þá í samræmi við hugmyndabílinn, en það ætti ekki að koma á óvart.
Þegar hugmyndin að bílnum var kynnt í München fyrr á þessu ári sagði Smart að Concept #1 leiddi í ljós „skýra innsýn í fyrstu framleiðslugerð nýrrar kynslóðar Smart -rafknúinna ökutækja“ - og það sýnir að fyrirtækið ætlar að hverfa frá pínulitlum borgarbílum sínum.
Hugmyndabíllinn í München á dögunum
Hugmynd #1 er 4.290 mm að lengd og 1.698 mm á hæð - aðeins lengri en VW Golf í heildina, með þaklínu sem er meira en 10 cm hærri en núverandi Nissan Juke. Hjólhafið er 2.750 mm, sem er meira en 10 cm lengra en stærri sportjeppinn, Qashqai. Smart er greinilega að vona að framleiðslugerðin hafi nóg pláss til að vera álitinn valkostur sem rafknúinn sportjeppi fyrir fjölskyldur. Sem slíkur, á meðan hugmyndin er fjögurra sæta, segir fyrirtækið að lokaútgáfa bílsins - sem er ráðgert að frumsýna fyrir lok næsta árs - rúmi fimm manns.
Geely er leiðandi í tækniþróun bílsins og þó að Smart hafi ekki staðfest val á grunni þá er það næsta víst að nota SEA-nýjan rafmagnsgrunn sem mun einnig styðja kínverskar markaðsgerðir, sem og væntanlegan lítinn bíl frá Volvo .
Daimler er ábyrgur fyrir innri og ytri hönnun bílsins. Gorden Wagener, aðalhönnuður fyrirtækisins, sagði: „Hugmyndin #1 er endurskilgreining á vörumerkinu Smart á mjög flottan og fullorðinslegan hátt. Við höfum búið til alveg nýtt erfðaefni hönnunar - sem hefur möguleika á að koma Smart á stall sem leiðandi hönnunarmerki.
Aðrar hugmyndir eru meðal annars 21 tommu álfelgur, LED framljós og afturljós og engin sjáanleg hurðarhandföng. Smart segir að hurðirnar - þar með taldar aftari hurðir - séu faldar og aðeins sýnilegar við „ákveðin birtuskilyrði“. Framgrill bílsins er skipt í litla þríhyrninga sem hægt er að lýsa upp saman eða hvern fyrir sig; þetta er hluti af „ljósasýningu“ sem stjórnast af tónlist eða takti.
Að innan er færanleg stjórnstöð sem koma má fyrir á fleti milli framsætanna og miðlægan 12,8 tommu snertiskjá með upplýsingakerfi. Smart segir að bíllinn sé með miðlægri tölvu sem stýrir fjórum meginkerfum: upplýsinga- og fjarskiptaaðstoð, aðstoð ökumann, rafmótorum bílsins og rafmagns/rafeindatækni. Fyrirtækið fullyrðir að hægt sé að uppfæra 75 prósent örgjörva bílsins með þráðlausum uppfærslum.
Smart hefur ekki gefið út tæknilegar upplýsingar en SEA-grunnurinn er sagður styðja rafhlöðustærðir á bilinu 58kWh til 100kWh og sportjeppinn er líklega með um 70kWh afkastagetu. Þó að grunnurinn rúmi einnig uppsetningar með tvöföldum mótorum sem framleiða meira en 500 hestöfl, þá er Smart líklegri til að hafa einn mótor - líklegast að aftan, fyrir þröngan beygjuradíus - með um 260 hestöflum. Fjórhjóladrifsútgáfa af bílnum er sömuleiðis möguleg.
(frétt á vef Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Heilu dekkjastæðurnar tókust á loft, gróður fluttist í annað hverfi, bílrúður brotnuðu og bílar flugu! Það gekk ekkert lítið á í annarri umferð Íslandsmótsins í rallýcrossi sem fram fór í gær. Þátttakan var einstaklega góð og þvílíkt úrval ökumanna!
PARÍS - Luca de Meo, forstjóri Renault, horfir til minni gerða sportjeppa til að auka árangur samstæðunnar utan evrópskra markaða, með gerð fyrir Dacia...
Níundi áratugurinn var kannski ekki sérlega spennandi hvað ameríska bíla varðar. Á markaðinn herjuðu stjórnvöld með nýjum reglugerðum...
Fiat 500, eða cinquecento er greinilega ítölsk hönnun, líkt og Vespa, ímynd bílsins er almennt tengd Ítalíu. Upprunalega hét Fiat 500, Topolino, sem þýðir að „litla músin“...