„Það er ofboðslega erfitt að aka þessum bíl… Án þessa að hrífast af honum,“ segir bílablaðamaðurinn og fyrrum kappakstursbílstjórinn Steve Sutcliffe í meðfylgjandi myndbandi.
Bíllinn er 475 hestöfl, með 6.2 l V8 vél og hljóðið í bílnum er… Já, ég hvet alla sem tök hafa á til að hækka vel í spilaranum því þetta er sko fallegt.
Corvetta þessi er 3.5 sekúndur frá 0 upp í 100 km/klst og hámarkshraðinn 184 mph (um 300 km/klst) er gefinn upp. Auðvitað þarf maðurinn að ganga úr skugga um hvort það sé rétt og finnur beinan og fínan kafla á hraðbrautinni og fer „flat out“.
Aðrar umfjallanir
„Ekki er öll vitleysan eins,“ sagði maðurinn og skrúfaði frá. Það þarf að huga að þrýstingnum þegar bíll er þveginn, ekki satt? Hér er ólögulegt bílbrak (afsakið Peugeot) „þvegið“ og þrýstingurinn ku vera 3000 bör. En stóra spurningin er: Hve mikill þrýstingur er hæfilegur þegar bíll er þveginn?
Samkvæmt frétt í dag á Autocar mun þessi endurnærði keppinautur Ford Ranger og fleiri svipaðra pallbíla, fara í sölu í Bretlandi í nóvember, bíllinn er kominn með nýtt útlit...
Brimborg frumsýnir laugardaginn 23. janúar að Bíldshöfða 8 í Reykjavík, í sýningarsal Peugeot á Íslandi, frá kl. 12-16, glænýjan, sparneytinn, rúmgóðan...
Útvíkkun framboðs Volvo bendir til þess að fyrirtækið sé að þróa flota rennilegra bíla og með loftfræðilegri áherslu...