Ný endurbætt útgáfa Toyota Hilux fær fjölda uppfærslna, meiri afköst
- Ný 2,8 lítra dísilvél færir meira afl, samhliða endurskoðuðu útliti, endurbættri tækni og endurbótum á undirvagni fyrir pallbílinn
- Kemur væntanlega hingað til lands um eða eftir næstu áramót
Toyota hefur gefið Hilux pallbílnum sínum uppfærslu, farið yfir hönnunina, endurskoðað undirvagninn og bætt við nýrri, öflugri vél.
Samkvæmt frétt í dag á Autocar mun þessi endurnærði keppinautur Ford Ranger og fleiri svipaðra pallbíla, fara í sölu í Bretlandi í nóvember, bíllinn er kominn með nýtt útlit á framenda með „þrívíddar grilli“ og breyttan stuðara sem sagt er að auki „nærveru“ bílsins, eins og Autocar tekur til orða. Betur búnar gerðir bílsins fá einnig LED ljós að framan og aftan, og nýr brons málmlitur er í boði.
Uppfært upplýsinga- og afþreyingarkerfi
Inni í breytingunum eru uppfært upplýsinga- og afþreyingarkerfi, með 8 tommu skjá og uppfærður hugbúnaður sem fullyrt er að sé hraðvirkari og móttækilegri, ásamt nýjum flýtivísum. Apple CarPlay og Android Auto eru líka til staðar. Nýr tiltækur búnað inniheldur 800 W, níu hátalara JBL hljóðkerfi.
Ný 2,8 lítra dísilvél
Toyota hefur einnig komið með 2,8 lítra dísilvél í boði á öðrum mörkuðum til viðbótar við 2,4 lítra eininguna sem þegar er í boði. Sú vél er 204 hestöfl og með 500 Nm tog, tekur Hilux frá 0-100 km/klst í 10,0 sek. - heilum 3,2 sekúndum hraðar en 2,4 lítra vélin sem núna er í bílnum. Enn hafa ekki verið gefnar upp WLTP tölur um hagkvæmni, en fyrirtækið segir að CO2 losun sé 204g/km miðað við NEDC fylgnitölur.
Fjöðrun og stýri endurbætt
Fjöðrun og stýri Hilux hafa verið endurbætt, fyrst og fremst til að bæta þægindi á vegum. Endurstilltir höggdeyfar og endurhönnuð blaðfjöðrum eru sögð færa mýkri akstur, og þá ekki síst þegar bíllinn er léttur og ekki með neinn þunga á pallinum.
Hins vegar hefur ýmislegt verið gert til að auka færni bílsins í akstri við verri aðstæður, til dæmis í torfæruakstri, þar á meðal lægri lausagangshraði vélarinnar og endurskoðuð stöðugleikastýring. Viðbrögð við inngjöf fótstigs hefur líka verið bætt.
Að lokum hefur toppgerðin „Invincible X“ fengið endurbætur á ýmsum sviðum með ýmsum uppfærslum á hönnun, að innan sem utan, umfram venjulegu gerðina.
Kemur til Íslands um eða eftir áramótin
Að sögn Páls Þorsteinssonar upplýsingafulltrúa Toyota á Íslandi er von á bílnum til Íslands um eða eftir áramótin, en það liggur ekki alveg ljóst fyrir í dag. Hann segir að þar á bæ líti menn björtum augum fram á það að fá bílinn með þessum endurbótum, sérstaklega með þessa nýju vél. Hiluxinn sé vinsæll meðal kaupenda, menn séu að nota sportlegu eiginleikana til fulls, að mestu hættir að setja hús á pallinn og séu frekar með góð palllok í staðinn.
Aðrar umfjallanir
Skjal sem var lekið sýnir tillögu um að lækka meðaltal losunar koltvísýrings um 50% yfir það stig sem er í gildi árið 2021, sem þýski iðnaðurinn myndi hafna...
Frá upphafinu – farið yfir uppruna meira en 50 bílaframleiðenda. Þessi umfjöllun verður í fjórum hlutum og hér er sá fyrsti!
ID3 rafbíllinn frá Volkswagen mun líklega ná söluaukningu eftir að vörumerkið hóf að taka við pöntunum á nýrri grunngerð bílsins...
Minnug þess hve óskaplega flottur bíll og töff Honda Civic Type R þótti þegar hann kom, getur maður varla ógrátandi skoðað þróunina á útliti blessaðs bílsins. Nú hefur 2023 árgerð þessa magnaða ökutækis verið kynnt og kannski er von.