Mazda mun fljótlega koma fram með endurmerkta útgáfu af Toyota Yaris í staðinn fyrir hinn aldraða Mazda 2
Mazda virðist ætla að koma fram með endurútgáfu af Toyota Yaris, sem gæti orðið staðgengill fyrir Mazda 2, sem er núna í sinni þriðju kynslóð frá árinu 2014. Ekkert er opinbert enn, en eftir að hafa kynnt sér ýmsar kynningar fjárfesta fyrirtækisins og útreikninga, er þetta niðurstaðan hjá breska bílavefnum Auto Express.
Langvarandi samstarf Toyota og Mazda
Nýi bíllinn verður hluti af langvarandi samstarfi Mazda og Toyota, en framleiðendurnir tveir munu vinna saman við allt frá tækni fyrir sjálfstæðan akstur til hreinna rafknúinna ökutækja.
Svipað samstarf á milli Toyota og Suzuki
Við höfum þegar séð svipað samstarf milli Toyota og Suzuki. Síðarnefnda fyrirtækið hleypti nýlega af stokkunum Swace-stationbílnum og Across sportjeppanum, sem eru minniháttar breytingar á Corolla og RAV4 og deila sama grunni, aflrásum, tækni og stærstum hluta útlits með samsvarandi bílum frá Toyota.
Svo að næsta gerð Mazda 2 mun, samkvæmt þessu, nota sama grunn og yfirbyggingu og nýjasti Yaris, þar sem Mazda gerir nokkrar breytingar á framendanum og innréttingum til að gera bílinn að sínum.
Sama vél og í Toyota
1,5 lítra bensínblendingvél Toyota, sem er 114 hö verður einnig samnýtt á þessum tveimur bílum, sem þýðir að eyðslutölur um 3,62 lítrar/100 km ættu að vera mögulegar. Sem aukinn ávinningur fyrir Mazda mun tvinnbílsaflrás Toyota einnig draga úr losun flotans og hjálpa fyrirtækinu að mæta sífellt hertum CO2 reglum.
(frétt á Auto Express)
Aðrar umfjallanir
Næsti Mercedes E-Class kemur árið 2023 og á tímum raf-endurfæðingar fyrir þýska vörumerkið mun hann eftir sem áður halda í brunavélina, á meðal annarra valkosta.
Maður sem ók aðeins út fyrir veginn og tók dálítið af jarðvegi með sér varð undrandi þegar bíllinn ofhitnaði skömmu síðar. Hann fór með bílinn á verkstæði þar sem bíllinn, tjah, varð töluvert léttari!
Mitsubishi mun koma af krafti aftur inn á Evrópumarkað með sportjeppa sem verður byggður á Renault Captur.
Þetta er stutt myndband og laggott úr smiðju eins mesta 3D meistara sem ég veit um. Mun ég kynna manninn betur innan skamms en hönnun sína og listaverk eru kennd við Robert Design og já, hann hefur skapað fallegan heim.