Volkswagen skoðar öflugan rafdrifinn Scout torfærubíl
Gæti hugsanlega komið á markað árið 2023
Volkswagen hefur farið sér hægt varðandi „alvöru“ torfærubíla, en þó hafa öðru hvoru borist fréttir af því að þar á bæ séu menn að velta svona bílum fyrir sér.
VW á Scout-nafnið
VW á nú réttinn á nafninu „Scout“ í gegnum Traton, dótturfyrirtæki sem sameinar vörumerki Man, Scania og Navistar undir sömu „regnhlíf“ fyrirtækja. Fyrir þá sem ekki þekkja til þess síðastnefnda var Navistar stofnað árið 1986 sem beinn arftaki gamla International Harvester fyrirtækisins og það á vörumerkið „Scout“ til þessa dags.
Traton keypti Navistar í byrjun júlí fyrir 3,7 milljarða dollara, sem þýðir í raun að VW er nú eigandi „Scout“ nafnsins og mætti nota það í framtíðinni.
Sérstaklega vísar vörumerkið til bíla, léttra og meðalstórra flutningabíla og jeppa með heildarþyngd yfir 1.088 kg.
Mörg ár í svona bíl frá Wolfsburg
Óháð nafninu þá eru líklega enn mörg ár í slíkan hugsanlegan alhliða rafbíl frá Wolfsburg. Þegar öllu er á botninn hvolft hefur þýska vörumerkið þegar kynnt Trinity fólksbílinn sem kemur árið 2026, og þó það þýði ekki endilega að „skátinn“ komi eftir það hefur VW meira til að fást við.
Það er enn ráðgáta hvaða grunn bíllinn myndi nota þar sem VW hefur þegar tilkynnt að það muni sameina MEB og PPE grunna til að búa til einn breytilegan grunn (SSP).
Áðurnefndur Trinity verður fyrsta gerðin til að nota grunninn í miklu magni, sem augljóslega verður deilt með öðrum vörumerkjum VW Group til að ná stærðarhagkvæmni.
Þar sem Jeep hefur þegar gefið í skyn rafmagnaðan Wrangler og fréttir af Ford benda einnig til þess að rafbílsútgáfa af Bronco sé væntanleg, þá væri skynsamlegt fyrir VW að vilja vera hluti af hasarnum með eigin torfærubíl.
(frétt byggð á greinum á vef Auto Spies og Motor Trend)
Aðrar umfjallanir
Samkvæmt eftirfarandi frétt frá fréttastofu Reuters setti Toyota bZ4X, fyrsta fjöldaframleidda rafbílinn sinn, á markað í Japan eingöngu í kaupleigu...
Gaurarnir hjá The Straight Pipes tóku nokkra góða spretti á völdum sporturum. Hvaða bílar finnst þér hljóma best?
Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda...
Toyota mun smíða tengitvinnbíla í Evrópu og gæti einnig framleitt bíla sem aðeins nota rafmagn frá rafhlöðum bíla á svæðinu þar sem...