Highlander kemur til Íslands
Toyota á Íslandi fær glæsilega viðbót í vörulínuna í janúar 2021 þegar Toyota Highlander verður kynntur í fyrsta sinn í V-Evrópu. Þessi bíll hefur notið mikilla vinsælda víða um heim frá því hann kom fyrst á markað árið 2000, ekki síst í Bandaríkjunum. Highlander er stór sportjeppi með góða aksturseiginleika og mikið innanrými, 2 tonna dráttargetu og veghæð sem sæmir öflugum sportjeppa eða 20,3 cm. Hröðun rá 0-100 km/klst. er 8,3 sek.
Highlander er í flokki E-SUV bíla þar sem Land Cruiser hefur verið í forystu hér á landi undanfarna áratugi.
Með þessu skrefi býður Toyota upp á enn fleiri lausnir í einum kröfuharðasta og vinsælasta flokki bíla á Íslandi með tæknilega vönduðum og sérstaklega rúmgóðum Hybrid sportjeppa. Tvö niðurfellanleg sæti eru aftast í bílnum og er því pláss fyrir 7 í Highlander.
Þetta er því stór og öflugur bíll en eyðslan er samt hófleg eða frá 5,8 – 8,2 lítrar á 100 km. Eyðslan fer eftir aksturslagi, ökuhraða og ytri aðstæðum.
Toyota Highlander er glæsilegur á götu, 4,95 m langur með 658 lítra farangursrými. Auðvelt er að fella niður tvær sætaraðir og mynda þannig 1.909 lítra farangursrými með sléttu gólfi. Highlander er búinn Toyota Safety Sense 2.5 sem er nýjasta útgáfa af öryggiskerfi Toyota.
Búnaður:
Staðalbúnaður í Highlander GX meðal annars:
18“ álfelgur, litaðar hliðarrúður, lykillaust aðgengi, verksmiðjuframleitt leðuráklæði, rafdrifið ökumannssæti, hiti í framsætum, upphitað stýri, Apple Carplay og Android Auto, bakkmyndavél, þráðlaus hleðsla fyrir GSM síma blindsvæðaskynjarar o.fl.
Staðalbúnaður í Highlander VX meðal annars:
20“ álfelgur, langbogar með krómáferð, rafdrifinn afturhleri, skiptiflipar í stýri, bílastæðaaðstoð, rafdrifin framsæti með minnisstillingu á ökumannssæti, fjarlægðarskynjarar og bakkmyndavél með leiðsögn o.fl.
Staðalbúnaður í Highlander Luxury meðal annars:
20“ álfelgur, rafdrifin framsæti með 2 minnisstillingum á ökumannssæti, 12,3“ skjár, JBL hljómkerfi, 11 hátalarar o.fl.
Aðrar umfjallanir
Nú fagnar Aston Martin, með röð þriggja sérútgáfa af Vantage, því að A3, elsti Aston Martin bíllinn sem enn er til, verður 100 ára gamall...
FRANKFURT - Volkswagen hefur lagfært galla í hugbúnaðinum sem höfðu áhrif á afhendingar á ID3 rafbílnum þegar honum var hleypt af stokkunum...
Hvað eiga VAZ 2101, Premier 118NE, SEAT 124, og Murat 124 sameiginlegt? Eða Zaztava 125, Nasr 125?
Í mars voru 249 fólks- og sendibílar af merkjum BL nýskráðir hér á landi, tæpum 53% fleiri en í mars 2020 þegar þeir voru 163...