- Sjö sæta Dacia Jogger sameinar hagkvæmni fjölnotabíls og áhrif frá jeppahönnun, og tvinnbíll verður í boði í fyrsta skipti frá Dacia
Dacia frumsýnir í Munchen nýjan Jogger sjö sæta fjölskyldubíl, sem verður fyrsta blendingsútgáfan frá þeim.
Þetta er mjög álitlegur bíll, en óvíst hvort eða hvenær hann kemur á markað hér á landi.
Við höfðum samband við BL, söluaðila Dacia á Íslandi, og þar á bæ fengum við þau svör að þeim fyndist bíllinn álitlegur, en engin ákvörðun lægi fyrir um hvort hann yrði til sölu hér á landi.
Góð veghæð og „jeppalegt“ útlit
Við höfum svo sem fjallað um Jogger hér á vefnum okkar, en þar sem við áttum þess ekki kost að vera á sýningunni í Munchen skulum við skoða þennan nýja bíl nánar með augum bílvefsins Auto Express. En fyrst vísum við í lýsingu framleiðandans sjálfs sem segir eftirfarandi um Jogger:
Dacia Jogger: Lengd skutbíls, stærð fjölnotabíls og útlit sportjeppa
Jogger er rúmlega 4,5 metrar á lengd sem gerir bílinn þann lengsta frá Dacia. Veghæðin er 200 mm frá jörðu. Jogger er, eins og allar væntanlegar Dacia gerðir, byggður á CMF-B grunni vörumerkisins.
Jogger verður í boði bæði 5 og 7 sæta.
Dacia Jogger: innrétting og hagkvæmni
„2,9 metra hjólhafið gerir ráð fyrir allt að sjö sætum, þó að Jogger verði einnig fáanlegur í fimm sæta útgáfu; við [blaðamaður Auto Express] könnuðum hversu mikið pláss væri í þriðju röð sjö sæta útgáfunnar og getum greint frá því að vel mun fara um fullorðna í öftustu sætunum,“ segir í grein Auto Express.
Hér má sjá fyrirkomulagið í bílnum með 3 sætaröðum.
Og hér með tveimur sætaröðum og hefðbundnu farangursrými aftast.
Rýmið í miðröðinni er svipað og þó ekki sé hægt að renna tvískiptum bekknum (60:40) til, þá er hægt að velta sætinu fram og bæta aðgengi að aftasta sætinu. Þetta er líka hagnýtur bíll með mikla lofthæð; 40 mm hækkun er á milli lofts fremri og aftari hluta í farþegarýminu.
Búið að velta öftustu sætaröðinni fram.
Og hér er búið að velta sætaröðum 2 og 3 fram.
Plássið er dágott í bílnum þegar aftasta sætaröðin er farin og búið að leggja aftursætin fram.
Önnur atriði sem auka notagildi eru t.d. aðfellanleg borð aftan á framsætum og innbyggðir þakbogar sem með fáeinum handtökum má breyta í þverboga.
Góðir þakbogar eru með þverbogum sem eru fengnir með því að snúa bogunum í 90 gráður.
Hér má sjá inn í bílinn að aftan án öftustu sætaraðarinnar.
En plássið er mun minna þegar aftasta sætaröðin er á sínum stað og í uppréttri stöðu.
Farangursrými er 213 lítrar með öll sjö sætin á sínum stað og fer upp í 712 lítra í fimm sæta stillingu með hámarks farmrými 1.819 lítra í boði með því að fjarlægja öftustu sætin (auðvelt mál, skrifaði blaðamaður Auto Express, þar sem hver stóll í þriðju röð vegur aðeins 10 kg), og leggja svo aðra röð niður.
Dacia Jogger: vélar og aflrásir
1.0 lítra þriggja strokka túrbóvél Dacia verður eina vélin sem býðst sem til að byrja með, annaðhvort sem TCe 110 bensínvél eða TCe 100 Bi-Fuel.
Bi-Fuel eldsneytisútgáfan er aðeins aflminni eða 99 hö og togið 170 Nm .
Stærri fréttir eru að Jogger verður fyrsti bíll Dacia með tengitvinnbúnaði árið 2023. Sá verður búinn 1,6 lítra bensínvél, tvöföldum rafmótor og 1,2kWh rafhlöðuuppsetningu. Þetta er sama vél og í Clio frá systurmerkinu Renault.
Það ætti að fara vel um bílstóra og farþega í framsætum á Jogger.
Dacia Jogger: útfærslur og hönnun
Frá upphafi verður Jogger fáanlegur í þremur útfærslum. Grunngerðin nefnist Essential, sú næsta Comfort og að lokum Extreme sem mun koma í takmörkuðu upplagi. Í Extreme útfærslunni eru meiri torfæruáherslur; svört klæðning utan um hjólboga og stuðara, sem og hlífðarplötur að framan og aftan. Jú, og 16 tommu svartar álfelgur eru líka hluti af Extreme útfærslunni.
Dacia Jogger: afþreyingarkerfi og tækni
Jogger mun koma á markað með þremur mismunandi margmiðlunarkerfum eftir búnaðarstigi. Í fyrsta lagi er Media Control, sem er byggt í kringum snjallsímaforrit, sem varpar upplýsingum yfir á skjá á mælaborðinu. Þetta er einfalt viðmót sem stýrir leiðsögukerfi símans, miðlum og síma.
Næst er Media Display kerfið, sem bætir við átta tommu snertiskjá með Android Auto og Apple CarPlay, auk fjögurra hátalara hljómtækis.
Búist er við fyrstu afhendingu á bílum í byrjun árs 2022, en Jogger Hybrid mun bætast við árið 2023.
Núna verðum við bara að sjá hvort þessi hagkvæmi fjölnotabíll muni koma á markað hér á landi.
(byggt á frétt á vef Auto Express – myndir frá Dacia og Auto Express)
Aðrar umfjallanir
DETROIT - sportjeppi sem byggður er á GMC Hummer mun keppa á torfærukeppnum rafbíla um allan heim á þessu ári sem hluti af nýjum margra ára...
Núna þegar spakir menn telja sig finna vorilm í lofti fara margir að hugsa til komandi sumars og þeirra ferðalaga sem framundan eru...
Það kemur fram á nokkrum vefmiðlum að framleiðslufyrirtækið Maruti Suzuki á Indlandi mun einnig smíða Jimny fyrir indverska...
Opel (og breska dótturfyrirtækið Vauxhall) hafa kynnt opinberlega rafknúna Combo-e sendibifreið sem kemur á Evrópumarkað haustið 2021...