Opel býður upp á ódýran hreyfanleika í þéttbýli með Rocks-e
Ekki fyrir svo löngu sögðum við frá því að Citroen hefði verið að kynna nýjan smábíl fyrir borgarumferð – Ami – en núnar hefur systurfyrirtækið Opel innan Stellantis samsteypunnar kynnt sína útgáfu að þessum nánast sama bíl, og núna undir heitinu Rocks-e
Opel miðar Rocks-e á samgöngur í borgum og á unga ökumenn.
Tveggja sæta rafmagns örbíllinn fer í sölu í Þýskalandi með haustinu. Aðrir markaðir munu fylgja síðar, sagði Opel í yfirlýsingu.
Rocks-e er með nýja Vizor vörumerki Opel, þar á meðal LED framljós og stefnuljós. Mynd: Opel.
Bíllinn verður fyrir neðan Corsa og verður verðlagður á því stigi sem næstum allir ökumenn hafa efni á, allt frá ungum byrjendum til þéttbýlisfólks, sagði Opel.
Flokkaður sem fjórhjól í Þýskalandi
Rocks-e er flokkaður sem fjórhjóli vegna smæðar og lítils hraða, þannig að hægt er að aka honum frá 15 ára aldri í Þýskalandi með sérstöku leyfi fyrir létta bifreið og nokkrum öðrum Evrópulöndum.
Rocks-e er með sæti fyrir tvo er með allt að 63 lítra hjá farþega íframsæti. -mynd: OPEL.
Opel segir að Rocks-e loki bilinu milli vespu og fólksbíla og bjóði upp á rafmagnshreyfingu með vörn gegn vindi og rigningu.
Eins og Ami er Rocks-e aðeins 2410 mm á lengd. Bíllinn er 1390 mm á breidd, að undanskildum ytri speglum.
Bíllinn vegur aðeins 471 kg, um það bil það sama og rafhlöðupakki sem er í hefðbundnum rafbíl sem aðeins notar rafhlöður til aksturs.
Örbíllinn vegur aðeins 471 kg, um það bil það sama og rafhlöðupakki sem er í hefðbundnum full-rafbíl. Mynd: OPEL.
Opel mun láta fylgja millistykki fyrir opinbera hleðslustöðvar en bíllinn mun ekki geta notað hraðhleðslustöðvar.
Hurðir Rocks-e opnast í gagnstæðar áttir – enda eru báðar hurðirnar eins.
(Automobilwoche - Automotive News Europe)
Aðrar umfjallanir
Við sögðum frá því að Ford Mustang Mach-E rafbílnum myndi seinka fram á næsta ár, hið minnsta á sumum svæðum, en Ford Mustang Mach 1 árgerð...
Í næstum eitt ár hafa flestir bílavefir reiknað með því að hugmyndabíllinn frá BMW sem sást á bílasýningunni í Frankfurt yrði arftaki BMW i8...
Volvo Cars hefur kynnt ýmsar uppfærslur fyrir allar rafknúnar XC40 Recharge og C40 Recharge gerðir sínar...
„Nýja lyktin“ í nýjum bílum er á undanhaldi þar sem eftirlitsstofnanir beina sjónum sínum að kemískum efnum sem koma frá plasti, lími, vefnaðarvöru og öðrum efnum...