Þegar spindilboltinn brotnaði!
- Þegar það var stundum raun að eiga gamlan bíl….
Ég var að skrifa um gamla tímann á dögunum, og þá rifjaðist upp sá tími þegar ég eignaðist fyrsta bílinn minn, sem þá var 22ja ára gamall! Sem sagt fimm árum eldri en ég sjálfur!
Ég á ekki mynd af þessum fyrsta bíl sem ég eignaðist en hér er mynd af bíl sömu gerðar; Morris 8 árgerð 1939. En minn bíll hafði tekið smá „breytingum“.
Flottu „innfelldu“ framljósin, sem voru ekki ósvipuð og á VW bjöllunni, voru horfin og í staðinn voru komin framljós af Austin 8, sem þá voru fest sitt hvoru megin á vélarhúsið.
Vélin í bílnum var einnig úr Austin 8. Menn kunnu að bjarga sér á þessum árum!
Hann var staðráðinn að fá sér betri bíl þegar „próflausa“ árið væri yfirstaðið, en var með „gott“ þriggja stafa bílnúmer á bílnum, og hann bauðst til að selja mér bílinn fyrir lítinn pening – að því tilskildu að ég myndi vera með númerið á bílnum þetta ár, en hann myndi síðan fá það á nýja bílinn og ég myndi fá mér annað númer.
Morris 8 árgerð 1939.
Spindilboltinn brotnaði á Keflavíkurveginum
Ég átti þennan ágæta Morris í nokkur ár og hann þjónaði mér ágætlega. Á því tímabili var ég að vinna sem kokkur á Flugvallarhótelinu á Keflavíkurflugvelli, og vann á hálfs mánaðar vöktum.
Á vaktatímabilinu bjó ég á Vellinum, en fór stundum heim í vaktafríum.
Gamli Keflavíkurvegurinn sem þá lá með Vatnsleysuströndinni og síðan yfir Vogastapann til Keflavíkur var á þessum tíma malarvegur og stundum var ástand hans ekki gott; lítill ofaníburður og stórar klappir í vegyfirborðinu.
Spindilboltinn brotnaði úr auganu á framöxlinum vinstra megin og hjólið datt af!
Næsta verk var að fá kranabíl frá Vöku til að draga bílinn með framendann á lofti heim á hlað í Setbergshverfið ofan Hafnarfjarðar, og koma mér svo aftur suðureftir í vinnuna.
Skýringarmynd af „spindilbolta“. Spindillinn sjálfur er með „klafa“ sem er með gati að ofan og neðan fyrir spindilfóðringu, en spindilboltinn er síðan rekinn í gegn um fóðringarnar og gatið á endanum á frambitanum, og þannig er hægt að snúa framhjólunum.
Gott að eiga góða að
Það var ekki hlaupið að því að finna varahlut í 22ja ára bíl þá frekar en í dag, og þá var ég svo heppinn að einn af félögum mínum í Hjálparsveit Skáta í Hafnarfirði, Snorri Magnússon, var að læra rennismíði hjá Agli Vilhjálmssyni.
Tveimur dögum síðar var búið að raða þessu saman á hlaðinu heima og Morris farinn út að aka.
En það var ekið ákaflega „varlega“ um erfiðu vegarkaflana á Keflavíkurveginum í næstu ferðum.
Hér má sjá hvernig þetta virkaði í raun og veru undir mínum gamla og góða Morris á sínum tíma.
Aðrar umfjallanir
Þetta litla kvikindi kemst upp í 130 km/klst og hefur verið líkt við Teslu hvað tækni snertir en verðlagningin þykir nær Ford Fiesta. Útlitslega er hann þó í líkingu við eitthvað löngu grafið og gleymt.
NAGOYA, Japan - Ef hlutirnir hefðu gengið að óskum, þá hefði hópur Toyota bifreiða snúið aftur til Tókýó í þessum mánuði í aðdraganda sumarólympíuleikanna...
Naumhyggja eða „mínímalismi“ er mjög ofarlega á baugi þessa dagana og nýleg breyting á sumum merkjum eða lógóum bílaframleiðenda...
Honda og Sony leggja lokahönd á 50-50, sameiginlegt verkefni til að smíða rafbíla árið 2025.