Sportbíll smíðaður úr aflóga timbri!
- Það er hægt að setja þennan tré Ferrari 250 GTO í gang og keyra í raun
- Það tók 70 daga að smíða bílinn sem vekur upp spurningar um raunvirði
Þegar David MacNeil keypti Ferrari 250 GTO 1963 árið 2018, greiddi hann 70 milljónir dollara fyrir bílinn, sem varð í raun dýrasti bíll í heimi. Sjaldgæft eintak - með aðeins 36 bíla sem hafa verið búnar til, það er í raun skynsamlegt - en það gerir hann ekki að vinalegum safnbíl fyrir venjulegt fólk! Svo, hvers vegna ekki að smíða þinn eigin úr tré?
Notaði aflóga timbur í smíðina
Eins og hann skrifar til skýringar þessi náungi timbur úr aflóga timbri svo hann stuðlar ekki að skógareyðingu til að búa til þessi fallegu sköpunarverk sín.
Minni útgáfa af upphaflega bílnum
Það er smækkuð útgáfa af Ferrari 250, en lítur eiginlega betur út en sá upphaflegi. Vinnan sem fór í að sveigja viðinn fyrir plöturnar í yfirbygginguna og setja upp smærri íhlutina er ótrúleg. Þeir sem hafa fengist við að smíða vita hversu erfitt þetta er allt saman.
Hér má svo sjá raunverulegan og upphaflegan Ferrari 250 GTO – mynd Ferrari.
Gaurinn á YouTube bjó til þennan bíl fyrir son sinn og í lok myndbandsins má sjá mennina tvo skipta um bíla - eftir 70 daga vinnu var þessi náungi verðlaunaður með Mercedes-Benz í staðinn. Það var líklega nokkuð traustur hvati við verkið þegar vinnan varð erfið.
(grein á vef Jalopnik)
Aðrar umfjallanir
Klassíska bíladeildin hjá Volkswagen hefur endurgert það sem hún kallar óvenjulegusta „gluggabíl“ sem smíðaður hefur verið. Þetta „rúgbrauð“...
Mazda fagnar 15 árum hjá Brimborg með veglegum afmælistilboðum til 30. júní. Mazda bílar hafa notið mikilla vinsælda á Íslandi og eru þeir í sérflokki...
PARÍS - Dacia, lággjaldavörumerki Renault Group, er að setja á markað nýjar útgáfur af söluhæstu minni bílunum sínum, að þvía ð fram kemur í frétt hjá Automotive News Europe í dag...