Volvo vöru- og flutningabílar vinsælastir og Volvo FH16 mest selda einstaka gerðin
Volvo vöru- og flutningabílar tróna á toppnum á Íslandi fyrstu sjö mánuði ársins með 33,7% hlutdeild og 28 nýja selda vörubíla yfir 10 tonn og er söluaukning Volvo á vörubílamarkaði yfir 200%. Í flokki vöru- og flutningabíla yfir 16 tonn er Volvo með 24 bíla og er Volvo FH16 mest seldi vöru- og flutningabíllinn af einstökum gerðum enda þrautreyndur við íslenskar aðstæður.
Með nýrri gerð Volvo vöru- og flutningabíla ásamt framúrskarandi þjónustu í nýrri þjónustumiðstöð Veltis á Hádegismóum hefur eftirspurn eftir Volvo vörubílum aukist mjög og er pantanastaða Veltis á Volvo vörubílum það sem eftir er árs mjög sterk.
Uppitími er meginmarkmið þjónustumiðstöðvar Veltis
Rekstraraðilar leggja leggja megináherslu á uppitíma enda skiptir höfuðmáli að atvinnubílar og atvinnutæki séu alltaf til reiðu í vinnu. Framúrskarandi uppitími veltur á fjórum þáttum þ.e. gæðum tækjanna, afkastagetu og tækjabúnaði þjónustumiðstöðvar, framúrskarandi varahlutaþjónustu og þekkingu og reynslu starfsmanna þjónustumiðstöðvar.
Hlutdeild eftir framleiðendum 2021
Volvo 28 bílar eða 33,7%
Vörubílar alls: 83
Aðrar umfjallanir
Nýi Ioniq 5 rafknúni krossover-bíllinn frá Hyundai lofar góðri hröðun, rúmgóðu innanrými og framúrstefnulegu stafrænu mælaborði - í einu orði sagt...
Í gær fór fram heimsfrumsýning á nýjum fjórhjóladrifnum og alrafmögnuðum Volkswagen ID.4 GTX. Umboðsaðili Volkswagen á Íslandi, Hekla...
Discovery hefur fengið talsverða uppfærslu. Þó ekki útlitslega séð. Hann er enn ansi líkur 2020 árgerðinni en drastískar breytingar líta dagsins ljós engu að síður...
Besta lúxusfarartækið 2022: Land Rover Range Rover hlýtur stjörnuverðlaun Motor1.com...