Krúttlegt ökutækjasafn í Valle de Guadalest
- Museo-Colección de Vehículos Históricos "Valle de Guadalest" er hátt uppi í fjalli fyrir ofan Benidorm á Costa Blanca á Spáni
Guadalest er lítið þorp uppi í fjöllunum á Costa Blanca fyrir ofan Benidorm og það er orðið mjög þekktur og mikið sóttur ferðamannastaður enda í aðeins 30 mínútna akstursfjarlægð frá ströndinni.
Þorpið er vinsæll áfangastaður, ýmist í skipulögðum ferðum eða hjá ferðamönnum sem leigja sér bíl og skoða þennan merka stað. Þar má meðal annars skoða Guadalest kastala (Castell de Guadalest) sem aðeins er hægt að nálgast með því að ganga um 15 feta löng göng í gegnum klettinn.
En það er staður í dalnum fyrir neðan Guadalest sem er það sem við ætlum að fjalla um í dag; lítið en snoturt „samgönguminjasafn“ þar sem meginuppistaðan í safninu eru gömul mótorhjól, auk nokkurra smábíla og annarra hluta.
Skemmtilegt safn
Eftir meira en 25 ára starf, við söfnun og endurgerð mótorhjóla og smábíla, opnað Don Ricardo Fracés Seguí árið 2003 safn á sögulegu ökutækjunum „Valle de Guadalest“.
Staðsetningin:
Carretera Callosa d'En Sarriá-Guadalest, Km 7
Mörg gömul og sjaldséð mótorhjól
Ég var svo heppinn að vera í ferð með einum sem veit ýmislegt um mótorhjól, ekki síst þau sem eldri eru og það gerði heimsóknina enn skemmtilegri.
Flestir safngripanna eru vel merktir, og gaman að sjá þróun mótorhjólanna yfir nánast eitt hundrað ára tímabil á einum stað.
Þarna voru líka sérbyggð mótorhjól með hliðarvögnum úr seinni heimstyrjöldinni, bæði frá bandamönnum og þýska hernum; bæði fallegt Bultaco hjól og BMW R75 frá WWII í eyðimerkurlitum.
Byrjunin
Hér er eitt af elstu reiðhjólunum.
Bílarnir
Bíladeildin í safninu byggist mest upp af sérstæðum evrópskum smábílum, auk nokkurra „ökutækja“ frá upphafi bílaaldar.
Kapi var spænskur bíll framleiddur af Automóviles y Autoscooter Kapi í Barselóna frá 1950 til 1955.
Isetta er ítalskur örbíll, hannaður af ítalska fyrirtækinu Iso SpA og var smíðaður með leyfi í fjölda mismunandi landa, þar á meðal Argentínu, Spáni, Belgíu, Frakklandi, Brasilíu, Þýskalandi og Bretlandi. Vegna eggjalaga útlits og kúlukenndra glugga varð hann þekktur sem kúlubíll (bubble car); nafn sem einnig er gefið öðrum svipuðum farartækjum.
Vespa 400 er örbíll með vél að aftan, framleiddur af ACMA í Fourchambault, Frakklandi, frá 1957 til 1961 eftir hönnun ítalska Piaggio fyrirtækisins.
Messerschmitt KR200, eða Kabinenroller, er þriggja hjóla „kúlubíll“ hannaður af flugvélaverkfræðingnum Fritz Fend og framleiddur í verksmiðju þýska flugvélaframleiðandans Messerschmitt frá 1955 til 1964. Sverrir Kr. Bjarnason sjónvarpsstarfsmaður (og vinnufélagi þess sem þetta skrifar um tíma) átti svona „bíl“ á upphafsárum sjónvarpsins ef ég man rétt.
Seinni heimsstyrjöldin
Mótorhjól voru mikið notuð á tímum seinni heimstyrjaldarinnar og á safninu eru slík farartæki með hliðarvagni frá nokkrum löndum.
Mótorhjól
En það er „mótorhjóladeildin" sem tekur mesta plássið á safninu. Þarna er að finna mótorhjól frá flestum helstu framleiðendum á árunum frá 1920 og fram undir okkar daga.
Myndir: Jóhannes Reykdal.
[Birtist fyrst í júlí 2021]
Þessu tengt:
Aðrar umfjallanir
Íslendingar óku gjarnan eigin bílum á ferðalögum erlendis og gat það verið meiriháttar áskorun. Í Tímanum árið 1961 birtust ráðleggingar til þeirra sem ætluðu á flakk úti í hinum stóra heimi og það á sínum eigin bíl.
Polestar hefur búið til einstaka mótorsportútgáfu af Polestar 2 rafbílnum. Bíllinn er þróaður og prófaður við býsna svalar aðstæður í Svíþjóð, í námunda við norðurheimskautsbaug.
Við erum þessa dagana að fjalla um fræga bíla í sjónvarpsþáttum. Að þessu sinni er það ekki bíll einkaspæjara ... þetta er bíll aðstoðarmanns einkaspæjara, þeim besta í heimi í rauninni að dómi margra, spæjarans sem kom frá Belgíu með stærsta heilann í morðgátubransanum: Hercule Poirot.
Volkswagen er að skoða að búa til pallbílaútgáfu af hinum rafknúna ID.Buzz